Innlent

Sáum engin merki um að eldgos væri hafið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir engin merki um að eldgos sé hafið í Dyngjujökli eða Bárðarbungu. Þetta kom fram í viðtali í fréttum Stöðvar 2 sem tekið var á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í kvöld þegar jarðvísindamenn komu úr fimm tíma flugi yfir Vatnajökul með flugvél Landhelgisgæslunnar.

„Það var ekki að sjá neina missmíði á jöklinum. Það virtist ekki vera að það komið gos upp úr jöklinum. Við sáum ekki merki um gos. En ég get náttúrlega ekki fortekið að það sé eitthvað að gerast sem ekki sést. En það er þá mjög lítið. En að öllum líkindum hefur þessi kvika ekki náð upp á yfirborð."

-Þegar þú segir ekki upp á yfirborð, ertu þá að tala um ekki í gegnum jökulinn eða ertu að tala um ekki í gegnum berggrunninn?

„Að öllum líkindum ekki náð upp á jökulbotninn."

-En er þá of snemmt að tala um að gos sé byrjað? Er það þá misskilningur að það sé hafið gos?

„Þegar ég fór í loftið um klukkan eitt þá var ekki hafið gos. Ég hef ekki fylgst alveg með fréttum síðan."

-En þú sérð engin merki þess að gos sé komið í gegnum bergvegginn?  

„Við sjáum engin merki þess að gos sé hafið á þessum stað."

-Hvernig metur þú framhaldið?

„Við verðum bara að sjá hverju fram vindur. Þetta er ekki búið."

-Það er þá engin hætta á jökulhlaupi?

„Ef það gýs þá er hætta á jökulhlaupi."

-En engin slík hætta sem stendur?

„Það kemur ekki næstu klukkutímana því það var ekkert þegar við fórum þaðan. En við skulum bara bíða og sjá hvað gerist," sagði Magnús Tumi.


Tengdar fréttir

Hraða viðgerðum í Kelduhverfi

Langbylgja RÚV næst í Kelduhverfi og Öxarfirði þótt FM útsendingar RÚV á svæðinu hafi ekki verið eins og best verður á kosið.

Frekari lokanir vega á Norðausturlandi

Almannavarnir hafa lokað fleiri leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla vegna flóðahættu sem gæti skapast við hugsanlega gæti skapast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×