Innlent

Sátu allir í nefnd um hámarksstyrki

Geir H. Haarde sagði á þingi að þeir hefðu engin merki sé um að fyrirtæki hefðu reynt að hafa áhrif á stjórnmálaöfl hér á landi.
Geir H. Haarde sagði á þingi að þeir hefðu engin merki sé um að fyrirtæki hefðu reynt að hafa áhrif á stjórnmálaöfl hér á landi.

Guðlaugur Þór Þórðarson auk Kjartans Gunnarssonar sátu í nefnd allra flokka sem var falið að fjalla um fjárframlög til stjórnmálaflokkanna. Geir H. Haarde lagði fram frumvarpið og setti saman nefninda.Hann hefur nú tekið opinbera ábyrgð á því að Sjálfstæðisflokkurinn veitti styrkjum FL Group og Landsbankans viðtöku.

Nú standa öll spjót á Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrrum heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins, eftir að Morgunblaðið fullyrti í morgun að hann hefði haft millligöngu um styrkina. Kjartan Gunnarsson var formaður nefndarinnar en hann segist ekki hafa verið kunnugt um styrkina.

Ekkert hefur náðst í Guðlaug Þór þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir, að auki hefur hann ekki svarað tölvupósti blaðamanns Vísis.

Allir þeir sem tengjast styrkjunum á einn eða annan hátt sátu í nefnd sem ákvarðaði hámarksstyrki til stjórnmálaflokka.

Í ræðu sem Geir H. Haarde flutti þann áttunda desember á Alþingi sagði hann:

„Við höfum ekki séð nein merki þess í dag að reynt sé með óeðlilegum hætti að hafa áhrif á stjórnmálastarfsemina í landinu af hálfu fjársterkra fyrirtækja eða fjársterkra einstaklinga en við viljum reisa skorður við þeim möguleika áður en slíkt gerði hugsanlega vart við sig og við viljum jafnframt gera flokkunum mögulegt að starfa með öflugum hætti með því að veita þeim eðlilegan stuðning af opinberu fé. Við teljum það nauðsynlegt til þess að flokkarnir geti sinnt því grundvallarlýðræðishlutverki sínu og því sem þeim er ætlað í stjórnskipan landsins. Við teljum nauðsynlegt að verja stjórnmálalífið fyrir þeirri hættu að gerðar verði tilraunir til þess að hafa áhrif á úrslit einstakra mála með óeðlilegum hætti."

Aðeins þremur vikum síðar tók Sjálfstæðisflokkurinn við 30 milljón króna styrk frá FL Group.

Nú hefur Geir axlað ábyrgð á þeim styrk, sjö mínútum síðar tók hann einnig ábyrgð á styrk sem barst frá Landsbankanum.


Tengdar fréttir

Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar

„Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006.

Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög

„Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.

Ábyrgð Geirs stórjókst á sjö mínútum

Ábyrgð Geirs H. Haarde jókst talsvert á sjö mínútum því fyrsta fréttatilkynningin sem fjölmiðlum barst í hendur sagðist hann bera ábyrgð á 30 milljón króna styrk FL Group til flokksins. Þar var ekkert minnst á 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum.

Árni M: Ég hafði enga hugmynd

„Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka.

Vill létta leynd af styrkjum

stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun beita sér fyrir því að leynd verði létt af fjárstyrkjum til Samfylkingarinnar, ríki einhver leynd yfir þeim. Svo geti verið að í einhverjum tilfellum hafi aðilar veitt styrki með leynd í huga, en leitað verði til þeirra og óskað eftir að leyndinni verði aflétt.

Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn

Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn.

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar.

Kjartan vissi ekki um FL styrkinn

Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi.

Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta

Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006.

Misræmi Guðlaugs Þórs

Misræmi er á milli þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði um vitneskju sína um styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins og þess sem Morgunblaðið fullyrðir um málið í dag.

FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni.

Bjarni og Þorgerður funda um málið

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×