Erlent

Sáttur með Hitler-líkingu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, heldur áfram að vekja furðu með ummælum sínum.
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, heldur áfram að vekja furðu með ummælum sínum. Nordicphotos/AFP
Mannréttindasamtök hafa furðað sig á ummælum Rod­rigos Duterte, forseta Filippseyja, sem stærir sig af því að láta drepa fíkniefnaneytendur og hefur ekkert á móti því að sér sé líkt við Hitler.

„Hitler myrti þrjár milljónir gyðinga. Nú, hér eru þrjár milljónir eiturlyfjasjúklinga. Ég myndi glaður slátra þeim,“ sagði Duterte. Hann var þarna að svara gagnrýnendum sínum, sem höfðu líkt honum við Hitler.

„Þið í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu getið kallað mig hvað sem ykkur sýnist,“ sagði hann svo. „En ég var aldrei í hræsninni eins og þið.“ Þarna vísaði hann til flóttafólksins frá Mið-Austulöndum: „Þið látið það rotna og svo hafið þið áhyggjur af því að þúsund, tvö þúsund eða þrjú þúsund deyi.“

Phil Robertson, yfirmaður hjá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch, segir það í hæsta máta undarlegt að nokkur skuli vilja láta líkja sér við einn stórtækasta fjöldamorðingja sögunnar.

„Vill hann láta senda sig til Alþjóðasakadómstólsins? Því þangað stefnir hann,“ spyr Robertson.

Reyndar mun Hitler hafa látið myrða meira en sex milljónir gyðinga auk annarra hópa, þannig að Duterte var ekki með tölurnar alveg á hreinu. Auk þess munu fíkniefnaneytendur á Filippseyjum líklega vera um það bil 1,8 milljónir. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Duterte segist ekki geta drepið alla

Rodrigo Duterte segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir umfangi fíkniefnasölu í landinu áður en hann varð forseti.

Hefur drepið þúsundir

Rodrigo Duterte hefur verið forseti Filippseyja frá því í júní. Í herferð sinni gegn fíkniefnum og glæpum hefur hann látið drepa meira en þrjú þúsund manns.

Enn versnar samband Duterte og Bandaríkjanna

Hinn umdeildi forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, lýsti því yfir í gær að fyrirhuguð heræfing í landinu þar sem Bandaríkjamenn og Filippseyski herinn taka þátt verði þær síðustu af slíkum toga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×