Innlent

Sáttmáli um nýja sókn í atvinnumálum

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, undirritaði stöðugleikasáttmálann í Þjóðmenningarhúsinu í dag.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, undirritaði stöðugleikasáttmálann í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Mynd/Pjetur
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með stöðugleikasáttmálanum hafi náðst breið samstaða allra aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkis um átak til að endurreisa efnahagslífið með fjölþættum aðgerðum.

„Þetta er yfirlýsing um víðtæka samvinnu við að koma þjóðinni út úr núverandi kreppuástandi. Þessar aðgerðir sem við ætlum að sameinast um, eiga að skapa skilyrði fyrir nýrri sókn í atvinnumálaum og þar með bættum lífsskilyrðum til framtíðar, okkur öllum til heilla," segir Gylfi á vef ASÍ og bætir við að forysta Alþýðusambandsins sé sérstaklega ánægð með að hafa náð að framlengja kjarasamning sambandsins sem feli í sér hækkanir fyrir þá tekjulægstu.

Gylfi vonar að með aðgerðunum verði hægt að koma hreyfingu á hjól atvinnulífsins með lækkun vaxta og samkomulagi um að greiða götu stórframkvæmda og leggja grunn að samkomulagi við lífeyrissjóðina um fjármögnun aukinna framkvæmda.

Þá segir Gylfi ljóst að þjóðin standi frammi fyrir mjög alvarlegri í stöðu í fjármálum ríkissjóðs. Finna verði leið til að minnka halla ríkissjóðs um 180 milljarða eða um þriðjung af umsvifum ríkisins á næstu 3-4 árum.

„Með samkomulagi við ríkisstjórnina náðist ákveðin varnarsigur með því að draga verulega úr niðurskurði í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfinu og þrátt fyrir að ríkistjórnin muni leggja verulegar byrgðar á heimilin í formi skattahækkana tókst okkur að koma í veg fyrir að enn lengra yrði gengið í þá átt með því að fá inn ákveðið þak á þann þátt," segir Gylfi.


Tengdar fréttir

Búið að skrifa undir stöðugleikasáttmálann

Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera segir þetta afara mikilvægan áfanga og veigamikla forsendu fyrir endurreisnarstarfinu á næstu misserum.

Viðbrögð helstu aðila: Sáttamáli um framfarir en ekki stöðnun

Fjölmargir aðilar koma að undirritun stöðugleikasáttmálans sem var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu rétt fyrir klukan tvö í dag. Við það tækifæri tjáðu ýmsir sig um samninginn og sagði Jóhanna Sigurðardóttir að um tímamótaviðburð væri að ræða. Aldrei hefði verið mikilvægara að undirrita slíkan sáttmálan en einmitt nú og hann væri lykilatriði í endurreisninni.

Jóhanna meinaði samningsaðilum að yfirgefa stjórnarráðið

Forsætisráðherra kallaði samningsaðila varðandi stöðugleika sátt á sinn fund í gærkvöldi og tilkynnti þeim að þeir fengju ekki að yfirgefa stjórnarráðið fyrr en samkomulag væri í höfn um nýjan stöðugleikasáttmála. Skattar hækka mikið á næsta ári en skattahækkanir verða allt að 45 prósent af aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að ná endum saman í ríkisfjármálum.

Stefnt að stöðugleikasáttmála í dag

Stefnt er að undirritun stöðugleikasáttmálans svokallaða í dag en stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar hafa fundað stíft síðustu daga og vikur.

Viðræðum slitið fyrir annarra hönd

„Forseti ASÍ og formaður SA ákváðu í beinni útsendingu að við hefðum slitið viðræðum,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem segir opinbera starfsmenn fráleitt hafa slitið viðræðum um stöðugleikasáttmála í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×