Nýjustu skoðanakannanir í Frakklandi benda til þess að Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti sé að sækja í sig veðrið fyrir fyrri umferð forsetakosninganna í apríl.
Fylgi Sarkozy mælist nú 27% en helsti keppinautur hans, Francois Hollande er með 29% atkvæða. Fyrir nokkrum vikum hafði Hollande hinsvegar 8% forskot á Sarkozy.
Marine Le Pen, forsetaefni Þjóðfylkingarinnar myndi fá 17% atkvæða í fyrri umferðinni samkvæmt þessum skoðanakönnunum.