Viðskipti innlent

Sáralítil mengun í verksmiðju Silicor að mati efnaverkfræðings

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Efnaverkfræðingur og ráðgjafi hjá Silicor Materials, sem áformar að reisa eina stærstu sólarkísilverksmiðju í heimi á Grundartanga, vísar á bug að mikil mengun muni skapast vegna starfsemi verksmiðjunnar. Gera þurfi þá kröfu til allra að farið sé með rétt mál.

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur skrifaði grein fyrr í mánuðinum þar sem hann varaði við mengun af fyrirhugaðri starfsemi bandaríska fyrirtækisins Silicor Materials sem áformar að reisa verksmiðju til að framleiða sólarsellur. Í grein Haraldar kemur fram að framleiðsla á sólarsellum sé sóðaleg og mengandi. Talsverð losun verði á eiturefninu sílikon tetraklórið. Greinin hefur fengið talsverða umfjöllun í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

Guðjón Jónsson, efnaverkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf sem unnið hefur fyrir Silicor hér á landi, segir að að um misskilning sé að ræða.

„Það er verið að rugla saman tveimur ferlum. Ferilinn sem Silicor ætlar að nota hefur ekkert með þann feril að gera sem Haraldur er að tala um, þessi Siemens-ferill,“ segir Guðjón.

„Það sem Silicor-ferilinn gengur út á er að það er í rauninni verið að þvo kísil og hreinsa hann með því að þvo hann í áli. Þetta er einstakt og er alveg nýr ferill. Gamli Siemens-ferilinn er með allt önnur efni, allt aðrar aðferðir og mengunarefni en koma frá þessum ferli.“

Umhverfismat þótti óþarft

Haraldur sagðist í samtali við fréttastofu í dag standa fyllilega að baki greininni og hún væri unnin út frá þeim gögnum sem hann hefði um starfsemi fyrirtækisins. Skipulagsstofnun þótti ekki nauðsynlegt að gera umhverfismat á framkvæmdinni þar sem hreinsun kísilmálms til framleiðslu á sólarkísil sé ekki líkleg til að hafa í för með sé umtalsverð umhverfisáhirf.

Hversu mikil mengun mun hljótast af starfsemi Silocor á Grundartanga?

„Hún er alveg sáralítil,“ segir Guðjón. „Við höfum reiknað út að þetta sé rúmlega 63 tonn af ryki sem að fylgir ferlinu. Losun gróðurhúsalofttegunda er undir þúsund tonnum sem er afskaplega lítið frá stóriðju. Þetta er sáralítil mengun í þessu iðnaðarumhverfi sem þarna er.“

Guðjón biður fólk um að vanda sig í umræðunni. „Öll svona umræða er afskaplega óþægileg. Við verðum að gera þá kröfu til allra að þeir fari með rétt mál ef þeir eru að ræða þessi mál. Fólk fer af stað og heldur að við séum að skrökva og að þarna sé eitthvað annað í gangi en það sem er í raun og veru. Öll slík umræða getur skemmt slíka ferla og er ekki neinum til góðs.“


Tengdar fréttir

67 milljarða króna samningur undirritaður í dag

Fulltrúar Thorsil ehf. og bandaríska fyrirtækisins Hunter Douglas Metals undirrituðu nú í hádeginu samning um sölu og dreifingu á kísil frá fyrirhuguðu kísilveri Thorsil í Helguvík.

Telja slys við Grundartanga bara tímaspursmál

Forsvarsmenn fyrirtækja á Grundartanga lýsa þungum áhyggjum af vegtengingu Hringvegar við afleggjarann að iðnaðarsvæðinu. Vegamálastjóri telur fulla ástæðu til að skoða vegamótin með umferðaröryggi í huga.

Áhrif framleiðslunnar á umhverfið óveruleg

Bent hefur verið á að veruleg mengun hafi fylgt framleiðslu sólarkísils. Í grein sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur ritar á vef sinn bendir hann á að slíkri framleiðslu hafi fylgt mikil losun á eiturefninu sílikontetraklóríði auk þess sem klórgas berist í miklu magni út í andrúmsloftið.

Silicor fær 35 megavött frá Orku náttúrunnar

Verksmiðjan þarf 80 megavött af raforku í fullum afköstum. Viðræður við Landsvirkjun um 45 megavött. Fjármögnun verkefnisins komin vel áleiðis að sögn Arion banka.

Skapar um 400 ný störf

Bandaríska fyrirtækið Silicor Materials hefur ákveðið að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Arionbanki muni annast fjármögnun verkefnisins, og að fyrir liggi viljayfirlýsing um kaup á orku frá Landsvirkjun og Orku Náttúrunnar (ON Power).

Misheppnuð ævintýri Silicor Materials

Stjórnvöld í Ohio og Mississippi hafa farið flatt á viðskiptum sínum við fyrirtækið sem hyggst reisa sólarkísilverksmiðju fyrir 77 milljarða króna á Grundartanga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×