Lífið

Sarah Linden í peysu eftir Röggu Eiríks

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ragnheiður vissi ekki að peysan yrði í þáttunum.
Ragnheiður vissi ekki að peysan yrði í þáttunum. Vísir/Stefán
„Ég sat heima og var að horfa á tvöfaldan lokaþátt The Killing í seríu þrjú – allt í einu sé ég aðalleikkonu þáttanna, Mireille Enos, í peysu eftir mig!“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, prjónahönnuður og hjúkrunarfræðingur, en hún hefur á undanförnum árum kennt prjón víða um heim og hannað prjónaflíkur.

„Peysan var örlítið breytt, en uppskriftin heitir Maren, eftir systur minni,“ heldur Ragnheiður áfram, létt í bragði.

„Þannig er mál með vexti að ég kenndi netnámskeið á heimasíðunni Craftsy, sem rúmlega fjögur þúsund manns eru nú þátttakendur í, og uppskriftin sem ég fer í gegnum á námskeiðinu er einmitt Maren. Eins og ég segi þá var peysunni örlítið breytt, en þannig vil ég hafa nemendur mína – skapandi prjónara,“ segir Ragnheiður jafnframt, sem veit ekki enn þá hver prjónaði peysuna eftir hennar uppskrift á leikkonuna.

Falleg peysa Mireille Enos klæðist hér peysu sem er prjónuð eftir uppskrift Ragnheiðar.
„Ég finn út úr því á endanum. Það er ótrúlega skemmtilegt fyrir prjónahönnuð að sjá verk sín á fólki, ég tala nú ekki um í þessu samhengi,“ segir Ragnheiður, sem viðurkennir að hún hafi orðið undrandi þegar hún sá Enos í peysunni. 

Bandaríska sjónvarpsserían The Killing er byggð á dönsku þáttaröðinni Forbrydelsen og fjallar um rannsóknarlögreglukonuna Söruh Linden sem í bandarísku útgáfunni er leikin af Mireille Enos.

Í upprunalegu útgáfunni klæddist aðalleikkonan, Sofie Gråbøl, peysum eftir færeyska hönnunarteymið Guðrún & Guðrún en í bandarísku endurgerðinni eru notaðar ýmiss konar prjónapeysur, þar á meðal Maren. 

Fyrsta þáttaröðin var frumsýnd í apríl árið 2011 vestan hafs og var tilnefnd til fjölda Emmy-verðlauna og Critics‘ Choice-verðlauna. Þá hafa áhorfstölur ekki látið á sér standa og hefur um ein og hálf milljón manna í Bandaríkjunum horft á hvern þátt í þriðju þáttaröðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×