Fótbolti

Sara með mark og stoðsendingu í stórsigri Rosengard

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk og stöllur hennar í Rosengård hafa farið vel af stað í sænsku úrvalsdeildinni.
Sara Björk og stöllur hennar í Rosengård hafa farið vel af stað í sænsku úrvalsdeildinni. facebook-síða rosengård
Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónum þegar Rosengård vann öruggan 0-4 sigur á Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sænsku meistararnir hafa byrjað deildarkeppnina af fítonskrafti en Rosengård hefur unnið alla þrjá leiki sína með markatölunni 13-1.

Svissneski framherjinn Ramona Bachmann skoraði tvö fyrstu mörk Rosengård á fjögurra mínútna kafla í byrjun seinni hálfleiks.

Þýska markamaskínan Anja Mittag skoraði þriðja markið á 60. mínútu eftir sendingu Söru sem skoraði svo fjórða markið tveimur mínútum seinna. Þetta var annað mark Söru í deildinni en hún skoraði einnig í sigrinum á Örebro fyrir tveimur vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×