Sport

Sara ekki bara „besta dóttirin“ heldur vann hún allar á The Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Mynd/Fésbókarsíða Crossfit
Íslenska Crossfitkonan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir vann fyrsta stigið á Crossfit heimsleikunum en þetta varð ljóst eftir að allar höfðu skilað inn fimmtu og síðustu æfingaröðinni sinni.

Ragnheiður Sara var því best af þeim 150 þúsund keppendum út um allan heim sem reyndu sig við sömu fimm þrautir en hver þraut var gefin út á fimmtudegi og stelpurnar höfðu fram yfir helgi til að skila inn æfingunum, annaðhvort með að taka þær upp á myndband eða fá þær vottaðar af fullgildum fulltrúa frá Crossfit samtökunum.

Sara var efst á heimsvísu eftir einvígið við Katrínu Tönju Davíðsdóttur eins og Vísir sagði frá í síðustu viku en þá átti stærsti hluti keppendanna eftir að skila inn sínum æfingum.

Ragnheiður Sara gerði smá mistök í einvíginu og skilaði því aftur inn æfingunum og var þá mun fljótari. Hún kláraði fimmtu og síðustu æfingaröðina á 6:32 mínútum en hafði klárað á 6:56 mínútum í einvíginu.

6:32 mínútur skiluðu Ragnheiði Söru sjötta besta tímann af öllum og það dugði til þess að tryggja henni efsta sætið á The Open. Næsta stig er síðan álfukeppnin en þar keppir Ragnheiður Sara í Ameríkuriðlinum í fyrsta sinn en hún hefur hingað til keppt í Evrópuhlutanum.

Ragnheiður Sara mun reyna í Ameríkuriðlinum  að tryggja sér sæti á heimsleikunum sem fara fram í Madison í Bandaríkjunum í ágúst næstkomandi.

Ragnheiður Sara varð í 9. sæti í fyrstu þrautinni, í 14. sæti í annarri þrautinni, í 3. sæti í þriðju þrautinni, í 2. sæti í fjórðu þrautinni og svo í 6. sæti í fimmtu og síðustu þrautinni.

Hún fékk alls 34 stig en markmiðið er að vera með sem fæst stig. Í öðru sæti var Kari Peatce með 38 stig.

Katrín Tanja Davíðsdóttir kláraði á 6:53 mínútum þegar hún vann einvígið sem varð á endanum 24. besti tíminn. Katrín Tanja endaði í tíunda sæti á heimsvísu en þrátt fyrir að vera inn á topp tíu þá endaði hún aðeins í fjórða sætinu af íslensku stelpunum.

Annie Mist Þórisdóttir varð í sjöunda sæti og Þuríður Erla Helgadóttir varð í áttunda sæti. Íslensku dæturnar eru því áfram áberandi meðal bestu crossfit kvenna heimsins. Það má sjá öll úrslitin hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×