Enski boltinn

Sara Björk yfirgefur Rosengård og Svíþjóð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sara Björk er á leið frá Svíþjóð.
Sara Björk er á leið frá Svíþjóð. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, mun yfirgefa félagsliðs sitt Rosengård í Svíþjóð í júní þegar samningur hennar rennur út.

Þetta staðfesti félagið í dag en Sara hefur verið á mála hjá Rosengård, áður Malmö, í fimm ár og orðið sænskur meistari fjórum sinnum.

Sara Björk var á tímabili fyrirliði liðsins en það varð síðast sænskur meistari á síðasta tímabili eftir æsispennandi lokasprett gegn Eskilstuna.

Fram kemur að Sara og Rosengård hafi tekið sameiginlega ákvörðun um að endurnýja ekki samning hennar en hún ætlar ekki að spila áfram í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×