Fótbolti

Sara Björk og stöllur hennar koma vel undan vetrarfríinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk fagnar með liðsfélögum sínum.
Sara Björk fagnar með liðsfélögum sínum. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir lék síðustu 13 mínúturnar þegar Wolfsburg bar sigurorð af Jena, 1-2, í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þetta var fyrsti leikur Wolfsburg eftir vetrarfríið.

Wolfsburg hefur unnið fjóra leiki í röð en liðið er í 2. sæti deildarinnar með 26 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Potsdam.

Sara hefur komið við sögu í 10 deildarleikjum hjá Wolfsburg á tímabilinu.

Næsti leikur Wolfsburg er gegn Sand eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×