Fótbolti

Sara Björk fór meidd af velli í úrslitaleiknum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara liggur óvíg eftir.
Sara liggur óvíg eftir. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir meiddist illa í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en lið hennar, Wolfsburg, mætir Lyon í úrslitaleiknum sem stendur yfir í Kiev. Meiðsli hennar virðast vera á hásin segir Guðmundur Benediktsson sem lýsir leiknum á Stöð 2 Sport.

Sara féll skyndilega í grasið á 55. mínútu leiksins en enginn leikmaður var nálægt henni. Leiknum er lýst í Boltavakt Vísis en þar segir:

„Gummi Ben sagði okkur í sjónvarpslýsingunni að meiðsli Söru Bjarkar væru á hásin, en hún sé ekki slitin, sem er lán í óláni. Trúum ekki öðru en harðjaxlinn Sara verði fljót að koma sér í lag að nýju."

Leikmenn Wolfsburg voru snöggir til og klöppuðu Söru á bakið en hún virkaði mjög þjáð. Hún vildi þó frekar haltra af velli en að vera borin útaf á börum.

Þetta er fyrsti úrslitaleikur íslensks leikmanns í Meistaradeildinni en vonast er eftir að meiðsli Söru séu ekki alvarleg þar sem mikilvæg verkefni bíða íslenska landsliðsins í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×