Sannleikurinn ekki alltaf sagna bestur segir prestur Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 2. október 2013 12:42 Herra Ólafur Ragnar, Agnes biskup, séra Hjálmar og séra Gylfi Þór leiða þingheim að þinghúsinu eftir messu. GVA
Séra Guðni Þór Ólafsson messaði yfir þingmönnum og sagði meðal annars að það að segja satt og vera ærlegur, fari ekkert endilega saman. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, segir þetta athyglisverða hugmynd. Sú hefð, að þingheimur gangi til messu áður en til þingsetningar kemur, verður stöðugt umdeildari. Um tugur þingmanna mætti ekki, margir í mótmælaskyni. Guðmundur mætti í Dómkirkjuna þó hann sé farinn að efast um réttmælti þessarar venju. „Mér finnst orðið tímabært að endurskoða þessa hefð. Mér finnst hún líka hafa breyst í eðli sínu á undanförnum árum. Nú göngum við með einhverri víggirðingu yfir Austurvöll þveran. Undir öryggisverði. Ekki sami bragur á þessu og áður var. Svo er ég líka almennt ekki fylgjandi því að blanda saman trúmálum og stjórnmálum.“ Guðmundur vill taka það fram að sjálfum þyki honum, persónulega, ágætt að ganga til kirkju og heyra hugleiðingar presta. „Mér finnst þá gott að þær séu settar fram á þeirra eigin ábyrgð. Þarna komu fram hugleiðingar hans meðal annars um hvort borgaði sig að segja sannleikann í pólitík. Ég er nú almennt á því að það borgi sig nú en hann tók áhugaverð dæmi um hið gagnstæða.“ Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur þjónaði fyrir altari, Agnes biskup leiddi bænagjörð og blessaði í lokin. Séra Guðni Þór predikaði og lagði í fyrstu út af Markúsarguðspjalli, þar sem talað er um að auðveldara sé fyrir úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki. Hann vék síðar að því að vera ærlegur, sem er kjarnaspurning kirkjunnar. Og það kunni að koma á óvart að það að láta eitthvað liggja í þagnargildi þurfi ekki að vera í andstöðu við það: „Í því sambandi er athyglisvert að siðfræðingurinn Bernhard Bueb hefur bent á, að það að vera ærlegur er ekki alltaf það sama og að segja satt. Stundum getur það að segja sannleikann verið eins og að kasta grjóti. Það getur verið ærlegra að láta sannleikann í liggja þagnargildi þegar hann er ekki í almannaþágu og gerir meira ógagn en gagn. Sem dæmi tekur hann gjaldþrot Lehmann Brothers bankans fyrir nokkrum árum. Þá gripu margir stjórnmálamenn víða um heim til þessa að gefa almenningi loforð um að bankainnstæður þeirra væru tryggar, þótt þeir vissu að kannski væri ekki hægt að standa við það. En það var sagt til að koma í veg fyrir að örvæntingu og gífurlegar hörmungar,“ bendi séra Guðni Þór þingmönnum og ráðherrum á. Hann sagði svo að á hinn bóginn væri líka hægt að segja satt án þessa að vera ærlegur: „Nefna má þegar fyrrum forseta Þýskalands hélt því fram að hann væri alls ekkert fjárhagslega tengdur umsvifamiklum viðskiptajöfri þar í landi. Síðar kom í ljós að hann hafði þegið hátt peningalán hjá konu þessa sama manns. Strangt til tekið hafði hann sagt alveg satt, en allir sáu að hann var svo langt frá því að vera ærlegur, að hann sagði stuttu síðar af sér. Að svara rétt er ekki alltaf það sama og að segja satt.“
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Sjá meira