Innlent

Sannkölluð Öskubuskusaga

Benedikt Bóas skrifar
Aðgerðin tókst vel og fór Öskubuska í göngutúr í gær, svolítið aum en hress og kát.
Aðgerðin tókst vel og fór Öskubuska í göngutúr í gær, svolítið aum en hress og kát.
Hjartagangráð var komið fyrir í hundinum Öskubusku í vikunni og er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert hér á landi. Rúna Þórisdóttir er eigandi Busku, eins og hún er jafnan kölluð, en eiginmaður hennar er Hjörtur Oddsson hjartalæknir. „Það var að líða reglulega yfir hundinn og hún hefði dáið hefðum við ekki framkvæmt þessa aðgerð,“ segir Hjörtur en skömmu eftir áramót fór að bera á þessum kvilla.

Stórt teymi kom að aðgerðinni og unnu læknarnir aðgerðina í sjálfboðavinnu. Alls tók þetta um þrjár klukkustundir en aðgerðin sjálf rúman klukkutíma. 

Buska var með það sem kallað er hægtaktur á hjartanu en þá virkar leiðslukerfið ekki sem skyldi.
„Aðgerðin virðist hafa gengið vel. Busku líður vel en hún er að sjálfsögðu aum eins og við var að búast. Hún hefur farið út í göngutúr og er öll að braggast,“ segir hann og bætir við að svona aðgerðir séu sjaldan gerðar í Evrópu þótt hann viti til að þetta hafi verið gert í Svíþjóð.

Svona aðgerðir eru algengari í Bandaríkjunum.

Buska var með það sem kallað er hægtaktur á hjartanu en þá virkar leiðslukerfið ekki sem skyldi. Á fagmáli kallast svona „þriðju gráðu block“ og lýsti sér þannig að hjartslátturinn var orðinn alltof hægur. Þetta er vel þekkt vandamál í manneskjum og þá er oftast settur gangráður í viðkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem svona aðgerð er gerð á ferfætlingi. Buska er rúmlega þriggja ára íslenskur hundur.

Fyrir utan Hjört voru þeir Felix Valsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir, og hjartaskurðlæknirinn Gunnar Mýrdal viðstaddir aðgerðina auk dýralæknanna Jakobínu Sig­valda­dóttur, Hönnu Arn­órs­dóttur og Agnesar Helgu Mart­in. Byrjað var á því að svæfa Busku og hún síðan rökuð. Næst var stungið á stóra hálsæð, vír settur niður í hjartað og gangráðurinn festur á kambinn. Hjörtur stóð straum af kostnaðinum og gerðu hinir læknarnir aðgerðina í frítíma sínum. 

„Með aðgerðinni björguðum við hundinum,“ segir Hjörtur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×