Sanngjarnar skuldaleiðréttingar

Fréttablaðið Aðsendar greinar 15. júní 2010 06:00
Efnahagsmál
Helgi Hjörvar 
alþingismaður og formaður efnahags- og skattanefndar
Efnahagsmál Helgi Hjörvar alþingismaður og formaður efnahags- og skattanefndar

Alþingi afgreiðir nú endurbætt og vönduð úrræði fyrir verst settu skuldarana. Einar sér eru slíkar lausnir þó líkt og að bera sólarljós inn í gluggalaust hús, því hætt er við að án víðtækra almennra skuldaleiðréttinga bætist við ný vandamál jafn harðan og leysist úr hinum eldri. Þess vegna er fagnaðarefni að fyrir Alþingi liggur einnig stjórnarfrumvarp félagsmálaráðherra um almennar aðgerðir vegna bílalána. Enn hefur þó ekki náðst samstaða um almennar aðgerðir vegna húsnæðislána almennings sem hafa ýmist orðið fyrir gengishruni eða verðbólgusprengju.

Þverpólitísk samstaða tókst í efnahags- og skattanefnd Alþingis fyrr á árinu um að kanna svigrúm bankanna til afskrifta. Af ársreikningi Landsbankans má ráða að bankinn sjálfur fékk hjá sínum kröfuhöfum 33% niðurfærslu á lánum einstaklinga. Einnig hefur fréttaflutningur verið af lánaflokki einnar fjármálastofnunar sem hafði verið færður niður um nær helming. Alls eru íbúðalán viðskiptabankanna yfir 500 milljarðar og afslátturinn sem þeim hefur verið veittur af kröfum tugmilljarðar. Bankarnir hafa gert almenn tilboð um skuldaleiðréttingar gengistengdra lána, en ekki verðtryggðra íslenskra húsnæðislána (utan Íslandsbanka - 10%) sem þó væri eðlilegt að gera tilkall til enda bera þeir og kröfuhafar þeirra verulega ábyrgð á forsendubresti sem viðskiptavinirnir líða nú fyrir og sanngjarnt að deila þeim kostnaði. Almennar leiðréttingar væru þó alltaf mun lægri en afsláttur til bankanna var því hann fer að verulegu leyti í tapaðar kröfur.

Skuldaleiðréttingar íslenskra húsnæðislána hafa hinsvegar alltaf strandað á því að lífeyrissjóðirnir og Íbúðalánasjóður yrðu að taka þátt í þeim. Það gæti annarsvegar leitt til skerðingar lífeyris sem enginn vill og hinsvegar gæti ríkið ekki lagt Íbúðalánasjóði til það sem þarf.



Ný staða
Seðlabanki Íslands gerði nýverið hagstæðan samning við Seðlabankann í Lúxemborg um kaup á skuldabréfapakka Avens sem innihélt íslensk íbúðabréf og innistæður. Skuldabréfin voru svo seld lífeyrissjóðunum og er talið hafa styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðanna um 1-2%, eða á þriðja tug milljarða. Stærstu sjóðirnir eru með liðlega 150 milljarða í húsnæðislánum til einstaklinga en nærri lætur að ávinningurinn af Avens samningnum gæti staðið undir 10-15% lækkun húsnæðislána lífeyrissjóðanna án þess að skerða þyrfti lífeyrisréttindi. Ekki getur talist óeðlilegt að ávinningur sjóðanna af íbúðabréfaviðskiptum renni til skuldaleiðréttinga húsnæðislána. Ábati ríkissjóðs af samningnum var ekki langt frá því sem lífeyrissjóðirnir nutu. Þar sem fyrst og fremst er um hagnað af íbúðabréfaviðskiptum að ræða væri ekki óeðlilegt að láta Íbúðalánasjóð njóta góðs af með sömu rökum og að ofan. Ef frekari eiginfjárframlög þyrfti til sjóðsins eða bankanna, þá er rétt að hafa í huga að endurfjármögnun bankakerfisins varð hátt í 200 milljörðum lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá má skoða ýmsar aðrar leiðir til eflingar Íbúðalánasjóði, s.s. hærri vaxtamun, merkja honum tekjur af sérstökum bankasköttum, skattleggja séreignasparnað og leggja í sjóðinn, o.s.frv. Þegar saman er lagt afskriftasvigrúm bankanna, ávinningur lífeyrissjóðanna og ríkissjóðs af Avens samningnum, auk annarra leiða er ljóst að skapa má allt að 100 milljarða svigrúm til almennra aðgerða.
Á næstu dögum fellur Hæstaréttardómur um lögmæti gengistenginga og getur þá skapast enn ný staða í skuldaleiðréttingamálum ef dómurinn fellur skuldurum í vil. Þegar þeirri réttaróvissu hefur verið eytt hafa stjórnmálaöflin í landinu tækifæri til að taka forystu og ná saman um sanngjarnar almennar skuldaleiðréttingar. Þær munu ekki leysa hvers manns vanda, né munu afskrifast 20% af öllu hjá öllum. Lántakendur geta heldur ekki vænst þess að lánveitendur beri allan skaðann sem 29,4% verðbólga á hálfu þriðja ári er, en eðlilegt er að honum sé deilt og kannski almennar aðgerðir eigi einkum að miða að þeim sem keyptu húsnæði á síðustu árum fyrir hrun.


Sáttaskref
Sumir hafa haft áhyggjur af því að almennar aðgerðir nýtist líka fólki sem ekki þarf á að halda. Þá er þrenns að gæta. Í fyrsta lagi hefur það fólk líka sætt óréttmætu vaxtaokri. Í öðru lagi, þó fólk eigi eignir umfram skuldir hefur auk tæplega 30% verðbólguskots, kaupmáttur rýrnað um 13% frá ársbyrjun 2008. Í þriðja lagi verður hægt að skattleggja þá sem við teljum ekki að eigi að njóta almennra aðgerða. Þeir sem hafa haft áhyggjur af skuldaradekri ættu að hafa í huga að án almennra aðgerða komum við einkum til móts við þá sem gengu lengst í skuldsetningu, en venjulegt vinnandi fólk sem hélt sig innan hámarkslána Íbúðalánanasjóðs fær engan stuðning þó lánin hafi hækkað um tæp 30% og kaupmáttur rýrnað um 13%. Það væru ekki góð skilaboð inn í framtíðina að skuldagleðin ein njóti skilnings.
Við munum ekki greiða úr fjármálum heimila hratt og vel nema saman fari greiðsluerfiðleikaúrræði og almennar aðgerðir sem skapa fólki almenn skilyrði. Stjórnvöld og fjármálakerfið þurfa líka að viðurkenna ábyrgð sína á vanda heimila. Skuldaleiðrétting er áþreifanleg leið til þess og mikilvægt skref til að byggja upp traust og ná sáttum í íslensku samfélagi.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Nýtt er orðið til

Í hinni helgu bók, Biblíunni, segir á einum stað: „…hið liðna varð að engu, ný...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Til Landspítalamanna

Félagar mínir á Landspítalanum, Jóhannes Gunnarsson og Björn Zoëga, svöruðu nýlega grein u...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Að fórna góðum árangri

Starfsemi sérdeildar fyrir einhverfa í Hamraskóla hefur byggst upp frá árinu 1996 og átti ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Ætlar þú að þrýsta á hnappinn?

Fyrir Alþingi liggur rammaáætlun um nýtingu vatnsafls til raforkuframleiðslu í landinu. Ma...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 11:28

Að viðurkenna vandann

Ég hef áður lýst því hvernig 5 afborganir af litlu láni sem ég var að semja um við Arionba...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Fögnum fjölbreytileikanum - einnig meðal lögmanna

Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður hefur verið dæmdur til greiðslu sektar til ríkissjóðs á g...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég óska þeim öllum til hamingju

Ég vil óska þeim öllum til hamingju sem láta sig velferð dýra varða. Frá og með fyrsta deg...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Landsbyggðin og Landspítalinn

Í skýrslu nefndar um uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbrau...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég ætla að lesa

Það er mér mikils virði að fá að vera þátttakandi í vinnunni sem fram undan er við að glæð...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Erum við undirbúin fyrir hamfarir?

Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparsviðs Rauða kross Íslands, skrifaði grein í Fréttabl...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Orkunýting og ferðaþjónusta

Víða getur ferðaþjónusta og orkuvinnsla farið vel saman.“ Svo segir m.a. í umsögn Sa...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Kirkjan þarf séra Gunnar Sigurjónsson

Eftir samræður mínar við fólk á förnum vegi síðustu vikuna um val á nýjum biskup fyrir Ísl...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Magnafsláttur skilar sér til viðskiptavina Bónus

Á árinu 1988, ári fyrir stofnun Bónus, fóru um 22% af ráðstöfunartekjum heimilanna til kau...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Moska, mannréttindi og kristin trú

Fyrir 14 árum bjó ég um tíma í landi þar sem fjöldi trúarbragða er sýnilegur á kröftugan o...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Barnasáttmáli SÞ er lykill að stuðningi við börn sem eru þolendur mansals

Ef til vill hljómar þetta eins og klisja, en er þó staðreynd sem aldrei má gleymast. Þetta...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Betra samfélag

Í dag eru rétt þrjú ár liðin frá því minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG tók við völd...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 13:38

Versti dagur Samfylkingarinnar

Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera stuðningsmaður Samfylkingarinnar síðustu fimm ...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 10:00

Við sníðum norræna velferðarsamfélagið að framtíðinni

Í dag hefst ársfundur SAMAK (samtaka norrænna jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinga) í Stokk...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

Okkur blæðir!

Ég ætla að vekja máls að nýju á þeirri staðreynd að samtengd rafræn sjúkraskrá á landsvísu...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

Konur mæta ekki nógu vel í leit að leghálskrabba

Árangur leghálskrabbameinsleitar hér á landi, sem hófst 1964, er ótvíræður. Nýgengi sjúkdó...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

ESB, IPA, BHM OG BSRB

Þegar Alþingi Íslendinga samþykkti að gengið skyldi til viðræðna við Evrópusambandið um mö...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

Borgarafundur um nýja mynt?

Fyrir viku síðan var haldinn fjölmennur borgarafundur um verðtrygginguna í Háskólabíó. Þar...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 11:08

Ekkert svigrúm

Stóridómur er fallinn. Tveir hagfræðidoktorar við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerðu sk...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 11:40

Ökklabrot, LÍN og sjúkrapróf í Háskóla Íslands

Síðastliðið haust hóf ég nám við Háskóla Íslands. Námið fór vel af stað og ég stundaði það...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 06:00

Betri er krókur en kelda

Nú í byrjun árs hefur enn á ný blossað upp umræða um fyrirhugaða byggingu nýja Landspítala...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 06:00

Íslenskar búvörur styrkja samkeppni á matvörumarkaði

Samkeppniseftirlitið kynnti nýlega ítarlega úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarka...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 06:00

Í orði en ekki á borði

Borgaryfirvöld sæta harðri gagnrýni um þessar mundir fyrir hvernig staðið er að sameiningu...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 06:00

Undirskrift þín til forsetans skiptir máli

Nú getur fólk nálgast áskorunarlista á forsetann á þremur vefmiðlum. Það er með því að far...  

Meira
Aðsendar greinar 30. jan. 2012 06:00

Tillögur sem skaða ferðaþjónustu

Stuðningur almennings við náttúruvernd hefur aukist að undanförnu, ekki síst vegna vaxtarm...  

Meira
Aðsendar greinar 29. jan. 2012 03:13

Í skjóli veikra innviða

Hagfræðingurinn Jeffrey Sachs ræðir um fátæktarvandamál Afríku í bókinni Endalok fátæktar ...  

Meira
Aðsendar greinar 28. jan. 2012 06:00

Bláar myndir

Blár ís fyrir stráka: bannaður stelpum, bleikur ís fyrir stelpur: bannaður strákum. Einhve...  

Meira
Aðsendar greinar 28. jan. 2012 06:00

Kraðak í Kvosinni

Í umræðunni um niðurrif Nasa munu fáir hafa nefnt annað áhyggjuefni. Fyrirhugað er að brey...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

Bændasamtökin: ríki utan ríkisins?

Í 15. gr. svokallaðs búnaðarlagasamnings sem gerður er á grundvelli laga nr. 70/1998 er kv...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 09:30

Sýkna án dóms og laga

Eitt sinn gekk ég tímabundið úr trúfélagi í kjölfar þess að helstu leiðtogar þess ákváðu a...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

Ef heiðríkt er og himinn klár

Ég, Þórir Jökull Þorsteinsson, hef ákveðið að gefa kost á mér til embættis biskups Íslands...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

Eftirlit – eftirlit!

Undanfarna daga hefur umræða um kadmíum í áburði, díoxín í matvælum, iðnaðarsalt og brjóst...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

RARIK semur við samsærismenn

Samkvæmt reglum á EES svæðinu er opinberum aðilum óheimilt að semja við fyrirtæki sem hafa...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

Lokun St. Jósefsspítala niðurlægir Hafnarfjörð

Sú hryggilega ákvörðun velferðarráðherra að loka St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði 1. des...  

Meira
Aðsendar greinar 27. jan. 2012 06:00

Hvetjum til húsnæðissparnaðar

Sögulega hefur lítill sparnaður verið á Íslandi. Því hafði það alvarlegar afleiðingar þega...  

Meira
Aðsendar greinar 26. jan. 2012 06:00

Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta

Fróðlegt verður að sjá hvernig þingmenn stjórnarandstöðunnar munu bregðast við náist að le...  

Meira
Aðsendar greinar 26. jan. 2012 06:00

Mismunun unga fólksins

Á góðærisárunum fram til 2008 var ungt fólk hvatt til að kaupa sér húsnæði í stað þess að ...  

Meira
Aðsendar greinar 26. jan. 2012 06:00

Um áhyggjur af mannréttindum Geirs H. Haarde

Nú liggur fyrir Alþingi þingsályktunartillaga þess efnis að afturkalla ákæru á hendur Geir...  

Meira
Aðsendar greinar 26. jan. 2012 06:00

Sýndarsamráð við foreldra

Frá því að umræður um sameiningu skóla í Grafarvogi hófust hefur að mati íbúa lítið raunve...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Sanngjarnar skuldaleiðréttingar