Sport

Sannfærandi hjá Mayweather

Mayweather lemur hér á Maidana.
Mayweather lemur hér á Maidana. vísir/getty
Boxarinn Floyd Mayweather er enn ósigraður í hringnum eftir að hafa haft betur gegn Marcos Maidana í Las Vegas um helgina.

Hinn 37 ára gamli Mayweather er nú búinn að berjast 47 sinnum á ferlinum og hefur aldrei tapað.

Bardaginn um helgina fór alla leið en allir dómarar dæmdu Mayweather sigur sem var sanngjarnt.

Umdeilt atvik átti sér stað í 8. lotu er Mayweather sagði Maidana hafa bitið sig.

„Ég fattaði ekki fyrst hvað hafði gerst. Eftir þetta þá dofnuðu fingurnir og ég gat ekki notað vinstri hendina," sagði Mayweather.

Hann hefur lýst því yfir að hann ætli sér að leggja hanskana á hilluna á næsta ári.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×