Golf

Sang-Moon Bae kallaður í herinn í heimalandinu

Skiptir Bae golfkylfunum út fyrir vélbyssu?
Skiptir Bae golfkylfunum út fyrir vélbyssu? AP
Ferill suður-kóreska kylfingsins Sang-Moon Bae á PGA-mótaröðinni er í hættu en þessu 28 ára kylfingur, sem er i 84. sæti á heimslistanum í golfi, hefur fengið þau skilaboð frá stjórnvöldum í heimalandinu að hann þurfi að snúa heim og sinna herskyldu í tvö ár.

Allir kóreskir karlmenn á aldrinum 18 til 35 ára þurfa samkvæmt lögum að sinna herskyldu í tvö ár í Suður-Kóreu en landið er enn í formlegu stríði við nágranna sína í norðri.

Bae hefur sigrað tvisvar á PGA-mótaröðinni, síðast í október á Frys.com meistaramótinu en ef hann snýr ekki aftur fljótlega gæti hann átt yfir höfði sér ákæru frá suður-kóreska ríkinu.

Það er hins vegar von fyrir Bae að fresta eða sleppa við herskylduna þar sem afreksíþróttamenn hafa oft fengið undanþágu. Það á eftir að koma í ljós á næstu dögum og vikum en það yrði mikil synd ef þessi skemmtilegi kylfingur þyrfti að draga sig frá keppni í tvö ár.

Hann yrði þó ekki fyrsti atvinnukylfingurinn á PGA-mótaröðinni sem hefði þurft að gera það því Tælendingurinn Thongchai Jaidee þurfti einnig að setja golfferill sinn á ís í nokkur ár vegna starfa fyrir herinn, en hann reis til metorða í tælenska hernum sem fallhlífahermaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×