Golf

Sang-Moon Bae í lykilstöðu fyrir lokahringinn á Silverado

Sang-Moon Bae var frábær á þriðja hring í gær.
Sang-Moon Bae var frábær á þriðja hring í gær. AP
Suður-Kóreumaðurinn Sang-Moon Bae er í frábærri stöðu fyrir lokahringinn á Frys.com mótinu sem fram fer á Silverado vellinum í Kaliforníu en mótið er það fyrsta á nýju tímabili á PGA-mótaröðinni.

Bae lék magnað golf á þriðja hring í gær eða á sjö höggum undir pari, en hann fékk meðal annars fimm fugla í röð á fyrri níu holunum og svo glæsilegan örn á 17. holu. Hann er samtals á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan hinum unga Zachary Blair sem er á 12 höggum undir.

Nokkrir öflugir kylfingar eru ofarlega á skortöflunni og ef Sang-Moon Bae verður ekki á tánum á lokahringnum gætu þeir gert atlögu að honum. Þar má nefna Matt Kuchar á 11 höggum undir, Hunter Mahan á 10 höggum undir sem og reynsluboltinn Retief Goosen.

Skotinn Martin Laird sem leiddi eftir tvo hringi náði sér ekki almennilega á strik á þriðja hringnum í gær og kom inn á 71 höggi eða einu undir pari. Hann er þó enn á 11 höggum undir pari og gæti blandað sér í baráttuna um sigurinn með öflugum hring í kvöld.

Lokahringurinn í þessu spennandi móti, sem fer fram á hinum glæsilega Silverado velli, verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsending klukkan 21:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×