Körfubolti

Sandra Lind og félagar unnu Súperkonurnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Lind Þrastardóttir.
Sandra Lind Þrastardóttir. Vísir/Ernir
Landsliðskonan Sandra Lind Þrastardóttir fagnaði sigri með liði sínu í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Lið hennar Hörsholm 79ers vann þá þrettán stiga heimasigur á Stevnsgade SuperWomen 72-59.

Sandra Lind spilaði í rúmar 18 mínútur í leiknum og skoraði á þeim 8 stig og tók 1 frákast, gaf 1 stoðsendingu og stal 1 bolta.

Sandra hitti úr 3 af 5 skotum sínum utan af velli og setti auk þess niður bæði vítaskotin sín.

Sandra Lind Þrastardóttir var fyrirliði Keflavíkur áður en hún hélt í víking til Danmerkur en hún stundar nám í Danmörku.

Hörsholm 79ers er áfram í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 11 sigra í 15 leikjum en liðið er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Virum GO DREAM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×