Íslenski boltinn

Sandra færir sig um set til Vals

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandra mun verja mark Vals næstu þrjú árin.
Sandra mun verja mark Vals næstu þrjú árin. mynd/valur
Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val en hún kemur til liðsins frá Stjörnunni. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals.

Sandra hefur verið í hópi bestu markvarða efstu deildar um árabil og hefur leikið 11 A-landsleiki.

Sandra, sem er þrítug, hóf ferilinn hjá Þór/KA/KS. Hún lék með liðinu til ársins 2004 þegar hann gekk til liðs við Stjörnuna þar sem hún hefur leikið síðan fyrir utan stutt stopp hjá Jitex í Svíþjóð 2011.

Eftir að hafa lent í 7. sæti Pepsi-deildarinnar undanfarin tvö tímabil hefur Valur blásið í herlúðra í vetur og styrkt lið sitt gríðarlega mikið.

Auk þess Söndru hafa systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur, Thelma Björk Einarsdóttir, Rúna Sif Stefánsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir samið við Val í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×