Erlent

Sanders vonast eftir sigri í New Hampshire

Samúel Karl Ólason skrifar
Dixville Notch kemst í heimsfréttirnar á fjögurra ára fresti.
Dixville Notch kemst í heimsfréttirnar á fjögurra ára fresti. Vísir/EPA
Forval fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum fer fram í New Hampshire í dag. Kjósendur munu greiða atkvæði sín og forsetaframbjóðendur notuðu gærdaginn til að skjóta föstum skotum á hvorn annan. Samkvæmt reglunum í New Hampshire mega bæir með færri en hundrað íbúa kjósa strax eftir miðnætti og var það til dæmis gert í bænum Dixville Notch.

 Af þeim níu sem mega kjósa í bænum Dixville Notch í New Hampshire, kusu fjórir Bernie Sanders. Þrír kusu John Kasich og tveir kusu Donald Trump. Bærinn er iðulega fyrstur til að gefa upp niðurstöður sínar í forvali fyrir forsetakosningar og kemst alltaf í heimsfréttirnar á fjögurra ára fresti.

Samkvæmt könnunum er Trump líklegastur Repúblikana til að vera kosinn í New Hampshire og Bernie Sanders þykir líklegur til að sigra Hillary Clinton.

Trump skaut hörðum skotum að Jeb Bush í sjónvarpsviðtali í gær og sagði hann vera að brotna niður. Hann sagði Bush vera ofdekrað barn og að fjölskylda hans skammaðist sín vegna hans.

Bush sjálfur lýsti Trump sem loser“, lygara og vælukjóa. Hann sagði Trump vera versta möguleikann í forsetaframboðinu og gerði út á tilhneigingu Trump til að meðal annars móðga konur, gera grín að fötluðum og kalla bandaríska stríðsfanga aumingja.

Þrátt fyrir að New Hampshire sé ekki stórt né fjölmennt ríki þykir það mjög mikilvægt. Þetta er annað ríkið sem forvalið á sér stað og er það mikilvægt til að koma framboðum af stað.


Tengdar fréttir

Hillary Clinton rétt marði Sanders með minnsta mun

Demókratar gengu að kjörborðinu í Iowa til að velja sinn frambjóðanda fyrir næstu forsetakosningar í nótt. Þar var spennan gríðarleg og þegar búið er að telja 99,2 prósent atkvæða er munurinn á Bernie Sanders og Hillary Clinton of lítill til að hægt sé að úrskurða sigurvegara.

Vilja bæði draga úr áhrifum auðkýfinga

Frambjóðendurnir Bernie Sanders og Hillary Clinton vilja bæði losna við pólitísk fjármögnunarfélög, sem beita auðæfum sínum til að hafa áhrif á kosningabaráttuna í Bandaríkjunum. Úrskurður Hæstaréttar frá 2010 stendur í veginum.

Úrslitin í Iowa komu flestum á óvart

Clinton og Sanders nánast hnífjöfn en Cruz vann óvæntan sigur á Trump. Rubio gerir sér síðan vonir um að þriðja sætið gefi honum forskot á aðra. Jeb Bush eyddi nærri tveimur milljörðum króna í auglýsingar í Iowa. Hann náði ekki ne




Fleiri fréttir

Sjá meira


×