Erlent

Sanders segir Trump vera „svikahrapp“

Samúel Karl Ólason skrifar
Bernie Sanders.
Bernie Sanders. Vísir/AFP
Öldungadeildarþingmaðurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Bernie Sanders segir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vera svikahrapp. Hann segir að Trump hafi boðið sig fram og sagst ætla að berjast gegn auðvaldinu og fyrir verkamenn, en það fyrsta sem hann hafi gert væri að skipa yfirmenn banka og fjármálafyrirtækja í mikilvægar stöður.

„Hann er góður sjónvarpsmaður. Ég held hins vegar að hann muni svíkja út miðstéttina og verkamenn í Bandaríkjunum,“ sagði Sanders í viðtali við CNN í gær.

Trump valdi Steve Mnuchin, fyrrverandi verðbréfamiðlara hjá Goldman Sachs og yfirmann vogunarsjóðs, sem fjármálaráðherra. Þá var Wilbur Ross, milljarðamæringur og yfirmaður banka, til að leiða viðskiptaráðuneytið. Gary Cohn, einn af æðstu yfirmönnum Goldman Sachs mun leiða efnahagsráð Trump.

Þá hefur Trump hafið vinnu að því að draga úr lögum og reglum varðandi bankastarfsemi.

Sanders segist hræddur um að þessir menn muni skera niður lífeyri og önnur réttindi launþega.

„Það er erfitt að hlæja ekki þegar maður sér Trump forseta með þessum mönnum frá Wall Street.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×