Erlent

Sanders: Ég tapa vegna þess að fátækir kjósa ekki

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bernie Sanders, forsetaframbjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum segir að hann hafi tapað í sextán forkosningum í ríkjum þar sem mikill ójöfnuður ríkir vegna þess að „fátækir kjósa ekki.“

„Það er bara staðreynd,“ sagði Sanders í viðtali við fréttastofu NBC aðspurður um ósigra sína í þeim ríkjum þar sem mikill munur er á milli þeirra sem ríkastir eru og þeirra sem fátækastir eru. „Þetta er sorglegur raunveruleiki Bandaríkjanna í dag og þetta er eitthvað sem við þurfum að breyta,“ sagði Sanders.

Sanders hefur byggt kosningaherferð sína á loforði um að draga úr ójöfnuði í Bandaríkjunum. Hefur hann hlotið mikinn stuðning frá grasrótarhópum þar í landi sem berjast fyrir sömu markmiðum. Fær hann mjög mikið af litlum framlögum í kosningasjóði sína frá slíkum hópum. Magnið er hinsvegar svo mikið að hann er farinn að safna hærri upphæðum í hverjum mánuði en Hillary Clinton, helsti andstæðingur Sanders.

Þrátt fyrir það hefur Clinton unnið sigra í suðurríkjum Bandaríkjanna þar sem meðaltekjur eru hvað lægstar. Sanders útskýrir það með tilliti til þess að fátækt fólk sé síður líklegra til þess að kjósa í kosningum.

„Í Bandaríkjunum er ein lægsta kjörsókn allra ríkja í heiminum,“ sagði Sanders. „Okkur hefur tekist vel að ná til ungs fólks en í síðustu kosningum, árið 2014, tóku 80 prósent af þeim teljast undir fátæktarmörkum ekki þátt í kosningunum.“

Sanders segir að ef það takist að fá fátæka til þess að taka þátt í kosningum myndi það gjörbreyta hinu pólitíska landslagi.

„Ef okkur tekst að auka kjörsókn fátækra og ungs fólks, ef við náum 75 prósent kjörsókn í þessum hópum, munum við gjörbreyta Bandaríkjunum,“ sagði Sanders.

Róðurinn er orðinn þungur fyrir Sanders eftir sigur Hillary Clinton í forkosningunum í New York ríki. Framundan eru forkosningar í fimm ríkjum þann 26. apríl, þar á meðal í Pennsylvaníu-ríki þar sem 189 kjörmenn eru í boði. Þarf Sanders nauðsynlega á sigri að halda ætli hann að  sigra Clinton í kapphlaupinu um útnefningu Demókrata-flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×