Enski boltinn

Sanchez stórkostlegur í öruggum sigri Arsenal | Sjáðu mörkin

Alexis Sanchez, leikmaður Arsenal, fór á kostum og setti tvö mörk í 3-0 sigri Arsenal á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal kemst upp fyrir Manchester United í stigatöflunni á markatölu með sigrinum en liðin eru tveimur stigum á eftir Manchester City eftir átta umferðir.

Skytturnar fengu sannkallaða draumabyrjun á 6. mínútu þegar Alexis Sanchez skoraði fyrsta mark leiksins með glæsilegri hælspyrnu framhjá David De Gea en markið virtist einfaldlega rota leikmenn Manchester United.

Aðeins mínútu síðar var boltinn kominn aftur í netið og var Mesut Özil þar að verki eftir skemmtilegan samleik við Theo Walcott.

Alexis Sanchez setti annað mark sitt og þriðja mark Arsenal tíu mínútum síðar er hann lék á tvo varnarmenn gestanna og skoraði með þrumufleyg í fjærhornið sem De Gea átti ekki möguleika að verja.

Arsenal fékk tækifæri til þess að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik voru gestirnir betri aðilinn og fengu færi til að minnka muninn en tókst ekki að koma boltanum framhjá Petr cech í marki Arsenal.

Lauk leiknum með 3-0 sigri Arsenal en lærisveinar Arsene Wenger voru afar sannfærandi í dag og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Var allt annað að sjá til liðsins heldur en í 2-3 tapinu gegn Olympiakos á dögunum.

Özil bætir við öðru marki Arsenal: Sanchez er í stuði:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×