Enski boltinn

Sanchez reyndi við ungfrú Síle

Andrade og Sanchez.
Andrade og Sanchez.
Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir Sílemanninn Alexis Sanchez, leikmann Arsenal, eftir umfjöllun í blöðunum um einkalíf hans.

Camila Andrade, ungfrú Síle, segist hafa fengið sms og myndir frá Sanchez er hann var í Disneylandi með kærustunni sinni. Hann hafi síðan boðið henni út að borða er Síle var að undirbúa sig fyrir HM síðasta sumar.

„Ég var á milli kærasta er hann bauð mér út. Það var í fyrsta skiptið sem hann hafði samband. Ég hafnaði honum því hann er ekki mín týpa. Ég var heldur ekki hrifinn af því að fá myndir og skilaboð frá honum er ég vissi að hann væri í fríi með kærustunni sinni," sagði Andrade við fjölmiðla í Síle.

„Hann laug að mér að hann væri í fríi með litlum frænda sínum. Svo sá ég mynd af þeim í blöðunum daginn eftir. Ég hló bara. Stelpur sem eru með stjörnur í augunum út af þessum fótboltastrákum þurfa að passa sig á þeim. Það er erfitt að trúa þeim."

Sanchez hefur ítrekað lent í umfjöllun fjölmiðla vegna kvennamála sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×