Erlent

San Francisco bannar sölu á plastflöskum

Atli Ísleifsson skrifar
San Francisco hefur verið leiðandi í Bandaríkjunum þegar kemur að umhverfismálum.
San Francisco hefur verið leiðandi í Bandaríkjunum þegar kemur að umhverfismálum. Vísir/Getty
Borgaryfirvöld í San Francisco hyggjast banna sölu á plastflöskum sem innihalda vatn. Með þessu vilja yfirvöld í borginni leggja sitt af mörkum til að draga úr gríðarlegum úrgangi sem hlýst af plastframleiðslu heimsins.

Á næstu fjórum árum stendur til að banna sölu á flöskum sem rúma um hálfan lítra af vatni eða minna á opinberum stöðum.

Þeir sem gerast brotlegir við hinar nýju reglur mega eiga von á þúsund dala sekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×