Körfubolti

San Antonio slátraði Oklahoma | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kawhi Leonard skorar tvö af 25 stigum sínum.
Kawhi Leonard skorar tvö af 25 stigum sínum. vísir/getty
San Antonio Spurs rúllaði yfir Oklahoma City Thunder, 124-92, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í nótt.

Yfirburðir San Antonio voru gríðarlega miklir en strax eftir 1. leikhluta var munurinn orðinn 23 stig, 43-20.

Heimamenn voru með 60% nýtingu í þriggja stiga skotum og náðu mest 43 stiga forskoti í leiknum.

LaMarcus Aldrigde var óstöðvandi en hann skoraði 38 stig fyrir San Antonio og hitti úr 18 af 23 skotum sínum.

Kawhi Leonard átti sömuleiðis flottan leik og skilaði 25 stigum, fimm fráköstum og fimm stoðsendingum. Danny Green var einnig sjóðheitur, setti niður fimm þrista í sex tilraunum og skoraði 18 stig.

Serge Ibaka var stigahæstur í liði Oklahoma með 19 stig. Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu 16 og 14 stig en skotnýting þeirra var ekki góð.

Liðin mætast öðru sinni á þriðjudaginn.

Leikurinn í draugsýn LaMarcus Aldridge átti frábæran leik
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×