Körfubolti

San Antonio burstaði Cleveland sem missti efsta sætið í austrinu | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
San Antonio Spurs tók NBA-meistara Cleveland Cavaliers og pakkaði þeim saman, 103-74, á heimavelli sínum í nótt en frammistaðan var sú allra lélegasta hjá LeBron James og félögum á tímabilinu.

Cleveland hefur ekki skorað færri stig allt tímabilið en liðið var án LeBron James allan fjórða leikhlutann eftir að hann fór út af meiddur undir lok þess þriðja. Hann skoraði 17 stig áður en hann fór af velli.

Meistararnir, sem eru búnir að verma efsta sæti austursins allt frá upphafi leiktíðar, eru ekki lengur efstir en þeir misstu toppsætið til Boston Celtics. Á meðan Boston (48-26) er búið að vinna átta af síðustu tíu er Cleveland (47-26) aðeins búið að vinna fimm af síðustu tíu leikjum sínum.

Spennan magnast í vestrinu en þar er Spurs (57-16) nú aðeins tveimur sigrum á eftir Golden State Warriors (59-14) í baráttunni um efsta sætið og besta árangurinn í allri deildinni. Þessi lið mætast í safaríkum leik aðfaranótt fimmtudags.

Kawhi Leonard heldur áfram að spila eins og engill fyrir San Antonio en hann skoraði 25 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar í nótt en stóru mennirnir LaMarcus Aldridge og Pau Gasol bættu báðir við fjórtán stigum.

Russell Westbrook hélt svo uppteknum hætti fyrir Oklahoma City Thunder í nótt og bauð upp á þrennu með 37 stigum, þrettán fráköstum og tíu stoðsendingum í 92-91 sigri á Dallas Mavericks.

Westbrook er búinn að ná 37 þrennum á tímabilinu, þar af þremur í röð og vantar fjórar í síðustu níu leikjunum til að jafna met Oscar Robertsson frá árinu 1962.

Að þessu sinni skilaði þrenna Westbrooks einhverju fyrir Oklahoma en liðið skoraði fjórtán síðustu stigin í leiknum og vann eftir magnaðan endasprett. Westbrook skoraði sigurkörfuna þegar sjö sekúndur voru eftir.

Úrslit næturinnar:

Toronto Raptors - Orlando Magic 131-112

NY Knicks - Detroit Pistons 109-95

San Antonio Spurs - Cleveland Cavaliers 103-74

Dallas Mavericks - OKC Thunder 91-92

Sacramento Kings - Memphis Grizzlies 91-90

Utah Jazz - New Orleans Pelicans 109-100

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×