Bíó og sjónvarp

Samuel L. Jackson fer mikinn í nýrri stiklu fyrir The Hateful Eight

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Aðdáendur Tarantino bíða margir spenntir eftir myndinni.
Aðdáendur Tarantino bíða margir spenntir eftir myndinni. myndir/youtube
Það styttist í áttundu kvikmynd bandaríska leikstjórans Quentin Tarantino en hún kallast The Hateful Eight og er væntanleg í kvikmyndahús þann 8. janúar á nýju ári. Í kvöld kom önnur stikla úr hinni væntanlegu mynd á vefinn.

Að sjálfsögðu leikur Samuel L. Jackson í myndinni en meðal annara leikara má nefna Channing Tatum, Kurt Russell, Tim Roth, Jennifer Lason Leigh, Michael Madsen og Bruce Dern.

Myndin gerist í Wyoming skömmu eftir borgarastyrjöld Bandaríkjanna og segir frá mannaveiðurum sem leita skjóls undan snjóstormi í afskekktu skýli. Til deilna kemur á milli þeirra og stóra spurningin er hvort þeir lifi allir vistina af.

Stikluna má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×