Enski boltinn

Samuel: United vinnur deildina ef þeir fá Bale

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Martin Samuel, blaðamaður Daily Mail í Englandi, er viss um að Manchester United vinni Englandsmeistaratitilinn á næstu leiktíð nái þeir að krækja í Gareth Bale, leikmann Real Madrid.

„Ég held að Manchester United gæti unnið deildina á næsta ári, en ef þeir fá Gareth Bale þá munu þeir klárlega vinna deildina. Þeir eru með lið á uppleið," sagði Samuel við Sunday Supplement þáttinn.

„Chelsea tók sextán af átján mögulegum stigum gegn liðunum sem voru í Meistaradeildinni. Það er góðs viti að þú getur spilað við þá bestu."

Samuel segir að það sé mikilvægt að vinna liðin í toppbaráttunni, en það þurfi einnig að vinna liðin neðar í töflunni. Hann segir að það hé helsti munurinn á Chelsea í fyrra og í ár.

„Næsta skrefið er að vinna leikina gegn restinu af liðunum og það gerði Chelsea þetta tímabilið. Á síðasta tímabili voru þeir að tapa leikjum sem við héldum að þeir myndu ekki tapa, en í ár hafa þeir breytt því og vinna deildina."

„Ef Manchester United hafði ekki tapað heima og á útivelli gegn Swansea, hvar væru þeir þá?" sagði Martin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×