Innlent

Samþykktu afrekasýningu á hátíðarfundi kvenna í borgarstjórn

Birgir Olgeirsson skrifar
Hátíðarfund kvenna í borgarstjórn sátu fimmtán efstu konur í borgarstjórn auk borgarritara sem var staðgengill borgarstjóra við þetta tilefni.
Hátíðarfund kvenna í borgarstjórn sátu fimmtán efstu konur í borgarstjórn auk borgarritara sem var staðgengill borgarstjóra við þetta tilefni. Vísir/Pjetur
Í dag fór fram hátíðarfundur kvenna í borgarstjórn en hann var hluti af hátíðarhöldum Reykjavíkurborgar vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Í dag eru 152 ár frá því fyrsta kona kaus til sveitarstjórnar á Íslandi en hún hét Vilhelmína Lever og kaus til bæjarstjórnar á Akureyri.

Þess vegna varð þessi dagur fyrir valinu fyrir hátíðafund kvenna í borgarstjórn en þann fund sátu 15 efstu konur í borgarstjórn, auk borgarritara sem er staðgengill borgarstjóra við þetta tilefni.

Á dagskrá fundarins voru samþykktar þrjár tillögur en þær voru að halda afrekasýningu kvenna á Íslandi í Ráðhúsi Reykjavíkur, fela forsætisnefnd að hefja undirbúning að stofnun ofbeldisvarnarnefndar á vegum mannréttindaráðs og þá var samþykkt tillaga um að halda málþing um þátttöku og áhrif kvenna í stjórnmálum á afmælisdegi Ingibjargar H. Bjarnason.

Reykjavíkurborg mun standa fyrir 100 viðburðum, smáum og stórum, í tilefni þess að öld er liðin frá því að konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Með hátíðahöldunum verður minnst þess árangurs sem náðst hefur í kvenréttindabaráttunni og hvatt til jafnréttis kynja á öllum sviðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×