Viðskipti erlent

Samsung sendi eigendum Galaxy Note 7 skringilega kassa

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Tæknifyrirtækið Samsung hefur sent eigendum Galaxy Note 7 símanna umbúðir sem eigendurnir eiga að skila símunum í. Umbúðirnar hafa vakið nokkra athygli en með þeim fylgja meðal annars hanskar og eldvarinn kassi.

Fyrirtækið tilkynnti í gær að framleiðslu og sölu símanna hefur verið hætt vegna eldhættu vegna galla í rafhlöðu þeirra. Fyrirtækið innkallaði 2,5 milljónir síma og skipti þeim út fyrir nýja sem áttu að vera öruggir.

Nú hafa hins vegar komið upp atvik þar sem einnig hefur kviknað í nýju símunum. Samsung hefur ekkert sagt um hvað sé að, né hvort að starfsmenn viti hvað sé að.

Eigendur símanna hafa verioð beðnir um að skila þeim og fá endurgreiðslu eða aðra vörur frá Samsung. Þá eru þeir beðnir um að senda símana ekki í flugi þar sem það gæti skapað mikla hættu ef þeir springa.

Fjárfestar hafa brugðist reiðir við klúðrinu með símanna og fara fram á að fyrirtækið reki uppruna gallans. Þá kalla þeir eftir því að fyrirtækið komi með nýjan síma á markað eins fljótt og auðið er.

Reuters fréttaveitan segir greinendur gera ráð fyrir því að skaðinn gæti verið um 17 milljarðar dala. Þá hafi vörumerki Samsung einnig orðið fyrir miklum skaða og mögulegt er að vandinn muni hafa áhrif á framtíðartekjur fyrirtækisins.

Samsung hefur þó einnig verið hrósað fyrir viðbrögðin vegna vandans. Skaðinn er hins vegar sá að fyrirtækið þarf að útskýra hvað kom upp á og gera notendum ljóst að sjónvörp þeirra, hátalarar eða næstu símar muni ekki springa í loft upp. Fyrirtækið þarf að byggja traust upp á nýtt.

Hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkað um ellefu prósent í vikunni og stefnir í verstu viku þeirra frá árinu 2008.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×