Viðskipti erlent

Samsung ræður ekki við eftirspurn eftir S6 Edge

Samúel Karl Ólason skrifar
Spár segja til um að S6 símarnir muni slá sölumet.
Spár segja til um að S6 símarnir muni slá sölumet. Vísir/EPA
Tæknirisinn Samsung frá Suður-Kóreu mun líklega ekki geta annað eftirspurn söluaðila eftir Samsung Galaxy S6 Edge símunum. Framleiðsla símans er tímafrek vegna þess að skjárinn er beygður og forsvarsmenn fyrirtækisins höfðu gert ráð fyrir minni eftirspurn.

Á vef Guardian er haft eftir JK Shin, yfirmanni farsímadeildar Samsung, að fyrirtækið ráði ekki yfir framleiðslugetu til að anna eftirspurninni.

AFP fréttaveitan sagði frá því í morgun að spár geri ráð fyrir því að Galaxy S6 sími Samsung muni slá sölumet og auka hagnað Samsung, sem dregist hefur saman á síðustu misserum. Apple og símaframleiðendur í Kína hafa tekið stóra bita úr köku Samsung undanfarin ár.

Bæði S6 og S6 Edge verða til sölu í tuttugu löndum á morgun, en símarnir voru fyrst kynntir í síðasta mánuði. Þeir hafa fengið góða dóma hjá tæknimiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×