Viðskipti erlent

Samsung lofar því að Galaxy S7 muni ekki springa

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Sá leiði vani fylgdi Note 7 að hann átti til að springa. Eldri týpur fyrirtækisins, líkt og sú sem hér sést, sprakk mun sjaldnar.
Sá leiði vani fylgdi Note 7 að hann átti til að springa. Eldri týpur fyrirtækisins, líkt og sú sem hér sést, sprakk mun sjaldnar. vísir/getty
Snjallsímarisinn Samsung heitir því að Galaxy S7, nýr snjallsími fyrirtækisins, muni ekki springa framan í notendur. Hann sé ekki háður sama rafhlöðukvilla og Galaxy Note 7. Sá sími átti það til að ofhitna svo að í honum kviknaði.

Um þetta tilkynnti Samsung í gær eftir að tækniblaðamaður hjá BGR fjallaði um að Galaxy S7 Active, eins konar sportútgáfa S7, hefði sprungið á fréttastofunni.

„Samsung er fullvisst um öryggi og gæði Galaxy S7 fjölskyldunnar. Engin staðfest tilfelli hafa borist um rafhlöðubilanir þeirra rúmlega tíu milljóna tækja sem nú eru í notkun í Bandaríkjunum,“ segir í yfirlýsingunni.

Bilanir í fyrrnefndum Note 7 urðu til mikils tekjutaps Samsung. Nú hefur sá sími hins vegar verið tekinn af markaði og úr framleiðslu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×