Viðskipti erlent

Samsung ætlar að láta skjáinn fylla upp í Galaxy S8

Samúel Karl Ólason skrifar
Stefnan er sett á að koma símanum á markað í mars á næsta ári.
Stefnan er sett á að koma símanum á markað í mars á næsta ári. Vísir/EPA
Galaxy S8 sími raftækjaframleiðandans Samsung verður með skjá sem nær yfir alla framhlið símans. Home takkinn svokallaði mun hverfa. Samsung vinnur nú hörðum höndum af því að byggja símann og koma honum á markað sem fyrst.

Fyrirtækið missti traust margra viðskiptavina og tapaði gífurlegum fjárhæðum á Note 7 símunum sem kviknaði í og því eru miklar vonir bundnar við S8. Stefnan er sett á að koma símanum á markað í mars á næsta ári, en samkvæmt heimildum Bloomberg gæti það tafist vegna umfangsmeiri gæðaprófa í kjölfar útgáfu Note 7.

Efst og neðst á framhliðum snjallsíma eru pláss þar sem tökkum, hátölurum, myndavélum, skynjurum og öðru er komið fyrir. Framleiðendur hafa um árabil reynt að minnka þau pláss, til þess að geta stækkað skjái en minnkað síma um leið.

Kínverska fyrirtækið Xiaomi kynnti nýlega símann Mi Mix sem býr yfir sömu tækni og Samsung stefnir að.

Bloomberg segir einnig að símarnir verði í tveimur stærðum og þeir hafa verið undanfarið. Það eru 5,1 tomma eins og S7 og 5,1 tommur eins og S7 Edge. Allar útgáfur símans verða með rúnuðum skjám.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×