Glamour

Samstarf Alexander Wang og Adidas heldur áfram

Ritstjórn skrifar
Seinasta lína sló í gegn.
Seinasta lína sló í gegn.
Alexander Wang hefur tilkynnt að önnur lína í samstarfi við Adidas verði fáanleg í vor. Á tískuvikunni í New York seinasta haust var fyrsta línan frumsýnd við góðar undirtektir. Flíkurnar voru þó aðeins seldar í afar takmörkuðu upplagi á afskekktum stöðum. 

Seinasta lína samanstóð nánast eingöngu af svörtum litum en Wang hefur gefið það út að nú muni vera meira um klassíska Adidas liti. Ekki er búið að sýna frá línunni en hægt er að eiga von á því næstu mánuðum. 






×