Samstaða um gamlar hugmyndir

Fréttablaðið Fastir pennar 09. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út fyrir að vera „ekki vinstri, ekki hægri og ekki miðjumoð heldur ný hugsun í stjórnmálum". Þetta virðist strax pínulítið vafasöm fullyrðing af því að leiðtogi flokksins stimplaði sig út úr Vinstri grænum meðal annars af því að þeir voru ekki nógu vinstrisinnaðir; vildu til dæmis ekki reka ríkissjóð með eins ríflegum halla og þingmaðurinn hefði kosið.

Stefnuskrá nýja flokksins virðist heldur ekki rík af nýjum hugmyndum. Þar stendur vissulega margt fallegt og markmiðin eru göfug, en hugmyndirnar sjálfar virðast flestar notaðar – og klárlega ættaðar af vinstri væng stjórnmálanna, eins og hefðbundið er að skilgreina hann.
Þannig vill Samstaða „öflugt norrænt velferðarkerfi sem tryggir almennan rétt til velferðarþjónustu án tekjutengingar". Lög og skattkerfi á að nota til að ná fram „jöfnuði, samstöðu og sameiginlegum velferðargrunni". Amazt er við því „tvöfalda heilbrigðiskerfi sem þróast hefur á Íslandi" og sagt að „hagnaðardrifin einkaframkvæmd" skuli ekki vera fyrsti kostur. Eitthvað er þetta nú kunnuglegt.

Sama má segja um þau stefnumið að orkufyrirtækin eigi að vera í samfélagslegri eigu og setja skuli lög um lágmarkslaun. Á fjármálamarkaði vilja Lilja og félagar að sé „einn öflugur banki í eigu ríkisins" en fólk hafi val um sparisjóði til hliðar við hann.

Samstaða vill veita ríkinu forkaupsrétt á landi, að eigendur og notendur lands greiði gjöld af land- og auðlindanotkun til hins opinbera, vill greiða flutningsjöfnunarstyrki af almannafé og að „á fákeppnismörkuðum ber[i] samvinnufélögum og hinu opinbera að hafa leiðandi hlutverk". Í sjávarútvegsmálum er flokkurinn fylgjandi fyrningarleiðinni; allur kvóti verði innkallaður og samningar gerðir um endurúthlutun.

Í ríkisfjármálum vill Samstaða að ríkið grípi til þensluhvetjandi aðgerða með útgjaldahækkunum og skattalækkunum, sem stækka þá væntanlega fjárlagagatið myndarlega.

Einna athyglisverðustu hugmyndirnar eru settar fram í lífeyrismálum; Samstaða vill að „hið opinbera tryggi öllum lífeyrisþegum viðunandi lífeyri án skerðingar" og segir umbúðalaust að flokkurinn vilji gegnumstreymiskerfi, eins og það sem er að setja ríkissjóði margra Evrópulanda á hausinn, í stað sjóðssöfnunarkerfisins sem Íslendingar hafa byggt upp og eru öfundaðir af.
Nýi flokkurinn vill svo vera utan ESB og er alveg á móti „landakaupum erlendra auðhringa og spákaupmennsku þeirra."

Hér er ekki ráðrúm til að ræða hversu vitlausar eða skynsamlegar þessar hugmyndir eru. Þetta eru vissulega hugmyndir sem margt fólk hefur haft lengi. En þegar þær eru kynntar sem „ný hugsun í stjórnmálum" er siglt undir fölsku flaggi. Samstaða er gamaldags vinstriflokkur af þjóðernissinnuðu sortinni – svona svipaður og þessi sem flokksformaðurinn var í til skamms tíma.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Samstaða um gamlar hugmyndir