Innlent

Samskipti við Bretland í aðalhlutverki á fundi EFTA-ríkjanna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Utanríkisráðherra ásamt hinum ráðherrum EFTA-ríkjanna
Utanríkisráðherra ásamt hinum ráðherrum EFTA-ríkjanna Vísir/EFTA
Á fundi ráðherra EFTA-ríkjanna í dag voru samskiptin við Bretland í brennidepli. Ísland leiðir starf samtakanna um þessar mundir og stýrði Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fundi ráðherra ríkjanna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ákveðið var að ráðherrar ríkjanna fjögurra muni vinna nánar saman svo hagsmunir EFTA-ríkjanna verði tryggðir við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þar kemur fram að Ísland muni hafa frumkvæði að því að boða til fundar þar sem viðbrögð EFTA-ríkjanna við Brexit verða undirbúin enn frekar. Kom fram í máli Lilju Alfreðsdóttur að mikilvægt væri að EFTA stæði vörð um fríverslun í heiminum á sama tíma og hún undirstrikaði mikilvægi þess að ríkin sýndu samstöðu.

„Útganga Breta úr Evrópusambandinu er bæði söguleg og flókin í framkvæmd. Við þurfum að fylgjast mjög vandlega með þróun mála og vera viðbúin, sama hvernig Bretar ákveða að haga sinni útgöngu. Það er mikilvægt að EFTA-ríkin séu samstíga og láti ekki ólíka hagsmuni eða samkeppni sín á milli hafa áhrif á samstarfið.” segir Lilja. Hún tók jafnframt fram að samskiptin og viðskiptin við Bretland væru eitt allra mikilvægasta utanríkismál Íslands.

Á fundinum var jafnframt farið yfir stöðu bæði eldri og nýrri fríverslunarsamninga sambandsins við önnur ríki. Þar á meðal var farið yfir stöðu yfirstandandi fríverslunarviðræðna við Víetnam, Malasíu og Indónesíu og stöðu endurskoðunar og uppfærslu gildandi samninga við Mexíkó.

Fundinn sátu auk Lilju; Johann Schneider-Ammann, efnahagsráðherra Sviss, Aurelia Frick, utanríkisráðherra Liechtenstein og Monica Mæland viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×