Innlent

Samráð EFTA-ríkja náið vegna Brexit

Atli Ísleifsson skrifar
Ráðherrafundi EFTA lýkur í kvöld.
Ráðherrafundi EFTA lýkur í kvöld. Mynd/utanríkisráðuneytið
EFTA-ríkin munu eiga með sér náið samráð til að viðhalda nánum efnahags- og viðskiptatengslum við Bretland, samkvæmt ákvörðun ráðherrafundar EFTA sem haldinn er í Bern í Sviss.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, en Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra situr fundinn fyrir hönd Íslands.

„Á fundinum var í dag rætt um þá stöðu sem upp er komin í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi, þar sem meirihluti kjósenda var fylgjandi úrsögn úr Evrópusambandinu.

EFTA-ríkin munu leita lausna samhliða viðræðum Breta við Evrópusambandið, eftir því sem frekast er unnt, til að koma í veg fyrir lagalegt tómarúm þegar útgöngusamningur Breta við ESB tekur gildi. Að svo stöddu telja þau hins vegar ótímabært að staðhæfa hvaða leiðir skili EFTA-ríkjunum bestum árangri.

Á fundinum ræddi Lilja um mikilvægi góðs viðskiptasambands Íslands við Bretland og fagnaði áhuga EFTA-ríkjanna á að ráðfæra sig við hvert annað til að tryggja sem bestan árangur.

Ísland í forystu EFTA og EES

Ísland tekur við forystu í EFTA þann 1. júlí. Samband aðildarríkjanna við Bretland verður efst á baugi í formennskutíð Íslands, en að auki bíður það samtakanna að halda áfram og ljúka fríverslunarviðræðum sem eru í gangi við lönd utan EFTA. Þá lýsti utanríkisráðherra því yfir, að setning jafnréttisstefnu fyrir EFTA verði meðal forgangsverkefna í formennskutíð Íslands og er undirbúningur þess þegar hafinn. Rætt var um þá fyrirætlan Íslands á fundinum í dag og ákveðið að hefja undirbúning að gerð slíkrar stefnu.

Samhliða forystu í EFTA gegnir Ísland forystu í EES frá 1. júlí, sem skapar góð tækifæri til samræmingar í áherslum,“ segir í tilkynningunni, en ráðherrafundinum lýkur í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×