Erlent

Samningaviðræður Grikkja við lánardrottna hefjast í dag

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Fjöldi Grikkja flæddi út á stræti borga landsins til að mótmæla nýja lagapakkanum. Mikill hiti var í mótmælendum í Aþenu sem köstuðu meðal annars eldsprengjum.
Fjöldi Grikkja flæddi út á stræti borga landsins til að mótmæla nýja lagapakkanum. Mikill hiti var í mótmælendum í Aþenu sem köstuðu meðal annars eldsprengjum. nordicphotos/afp
Formlegar viðræður um nýjan neyðaraðstoðarsamning fyrir Grikkland hefjast í dag milli Grikkja og lánardrottna þeirra eftir að gríska þingið samþykkti lagapakka til að greiða fyrir viðræðunum.

Lagapakkinn sem um ræðir inniheldur meðal annars afnám ríkisábyrgðar á viðskiptabönkum og breytingar á dómskerfinu.

Grikkir hafa nú að mestu uppfyllt þær forsendur sem ríki evrusvæðisins og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins settu fyrir 86 milljarða evru neyðaraðstoð sem komist var að óformlegu samkomulagi um fyrr í mánuðinum.

„Við höfum valið leið sem neyðir okkur til að fylgja áætlun sem við trúum ekki að geri gagn en við verðum að gera það því aðrir valkostir eru of erfiðir,“ sagði forsætisráðherra Grikklands, Alexis Tsipras sem þurfti að treysta á atkvæði stjórnarandstöðuflokka til að koma lagapakkanum í gegnum þingið þar sem 36 þingmenn úr flokki hans, Syriza, kusu á móti.

Alexis Tsiprasnordicphotos/AFp
Gríska ríkisstjórnin vill ljúka viðræðum bráðlega og samþykkja samninginn á gríska þinginu fyrir 20. ágúst næstkomandi. Þann dag eiga Grikkir að greiða 3,4 milljarða evra afborgun af láni frá Seðlabanka Evrópu.

Fjölmiðlar víða um heim hafa velt fyrir sér möguleikanum á að kjósa nýtt þing vegna óeiningar innan flokks Tsipras. Kosningarnar myndu fara fram eftir að samningurinn færi í gegn um þingið.Stjórnarandstaðan í landinu hefur lýst sig andsnúna þeirri hugmynd.

Stjórnmálaskýrendum þykir þó líklegt að Tsipras kalli til kosninga til að stokka upp í eigin flokki. Tsipras nýtur sjálfur mikils trausts grísku þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×