Lífið

Samkynhneigð systkini leika á fordómafullu foreldra sína á einstakan hátt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin tengist ekki fréttinni beint. vísir/getty
Það getur verið mjög erfitt fyrir suma að koma út úr skápnum og eru oft margar ástæður fyrir því.

Á vefsíðunni Viral Thread má lesa um systkini sem bæði eiga það sameiginlegt að vera samkynhneigð. Þau eiga aftur á móti mjög íhaldssama foreldra sem eru mjög fordómafullir í garð samkynhneigðrar.

Systkinin þora því ekki að segja foreldrum sínum frá kynhneigð þeirra en geta aftur á móti boðið mökum sínum alltaf í heimsókn.

Þau nefnilega segjast eiga kærustu og kærasta og séu í gagnkynhneigðu sambandi. Aftur á móti gistir kærastinn alltaf inni hjá bróðurnum og kærastan alltaf inni hjá systurinni eins sjá má hér að neðan.

Sniðug.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×