Samkeppnislög skipta miklu máli á flugmarkaði

Fréttablaðið Aðsendar greinar 23. febrúar 2012 06:00
Samkeppnislög
Páll Gunnar Pálsson
forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Samkeppnislög Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Páll Gunnar Pálsson skrifar:
Þann 9. febrúar sl. féll dómur í Hæstarétti Íslands þar sem staðfest er að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Var félagið dæmt til að greiða 80 m.kr. í sektir. Um var að ræða kynningu og sölu á svokölluðum Netsmellum, sem stóðu viðskiptavinum Icelandair til boða á árinu 2004. Héraðsdómur hafði áður staðfest niðurstöðu samkeppnisyfirvalda um brot Icelandair en fellt niður sektir.

Dómur Hæstaréttar felur í sér mikilvægt fordæmi. Hann er staðfesting þess að markaðsráðandi aðili í farþegaflugi verður að gæta sín vel á því að hindra ekki aðgang að markaðnum með kynningu og verðlagningu á flugfargjöldum.

Jafnframt er staðfest sú meginregla að sektir skuli liggja við brotum á bannreglum samkeppnislaga. Horfði Hæstiréttur einnig til þess að Icelandair hafði áður brotið sama bannákvæði.


Samkeppnisyfirvöld hafa ítrekað gripið inn í samkeppnishömlur á flugmörkuðum
Engum vafa er undirorpið að samkeppnisaðstæður á flugmarkaði skipta atvinnulíf og almenning í þessu landi miklu máli. Fyrrgreindur dómur fjallar um eitt af allmörgum málum þar sem samkeppnisyfirvöld hafa gripið inn í samkeppnishamlandi aðstæður á flugmörkuðum.

Í tvígang hafa samkeppnisyfirvöld gripið inn í undirverðlagningu Icelandair, í fyrra skiptið árið 2003 og hið síðara með ákvörðun árið 2007. Seinna málið endaði með fyrrgreindum Hæstaréttardómi.

Í nokkur skipti hafa samkeppnisyfirvöld gripið til aðgerða vegna flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Nægir að nefna háar sektir á Flugþjónustuna á Keflavíkurflugvelli (IGS), fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu við afgreiðslu farþegaflugvéla og nýleg fyrirmæli til IGS ehf. um að ganga til samninga við Cargo Express ehf. um fraktafgreiðslu, en því hafði verið neitað um slíka samninga. Árið 2000 var fyrirmælum beint til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. um að semja við flugafgreiðslufyrirtækið Vallarvini um nauðsynlega aðstöðu til innritunar og farþegaþjónustu, en flugstöðin hafði hafnað slíku.

Þá hefur Samkeppniseftirlitið beitt sér gagnvart flugmálayfirvöldum til að liðka fyrir samkeppni. Nægir að nefna að í fyrra beindi Samkeppniseftirlitið bindandi fyrirmælum til Flugmálastjórnar um að breyta verklagi sínu við veitingu flugréttinda með það að markmiði að auka samkeppni í flugi til og frá Íslandi.
Nánar er fjallað um þessar og fleiri aðgerðir í pistli nr. 1/2012, sem birtur er á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.


Aðgerðirnar hafa skilað árangri
Um þessar mundir bjóða tvö flugfélög upp á flugsamgöngur til og frá Íslandi allan ársins hring. Þriðja félagið hefur boðað starfsemi. Fleiri flugfélög bjóða auk þess upp á árstíðabundna þjónustu. Ein forsenda þessa er að flugfélög hafa val um flugþjónustufyrirtæki auk þess sem þjónusta flugmálayfirvalda er smátt og smátt að færast til betri vegar. Í þessu felst mikil breyting á fáum árum, frá því að eitt flugfélag réði lögum og lofum og naut til þess ýmiss konar stuðnings yfirvalda.

Þessa breytingu má að miklu leyti þakka þeim sem sáu tækifæri til þess að bjóða upp á nýja valkosti og höfðu kjark til að hrinda þeim í framkvæmd. Jafnljóst er að þær tilraunir hefðu í mörgum tilvikum mistekist, ef samkeppnislaganna hefði ekki notið ekki við og þeim fylgt eftir.

Margt er hins vegar óunnið. Nefna má að í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008, Öflug uppbygging – Opnun markaða og efling atvinnustarfsemi, er m.a. fjallað sérstaklega um flugmarkaði, bent á ýmsar aðgangshindranir inn á þessa markaði og leiðir til að ryðja þeim úr vegi.


Samkeppnislögin vernda samkeppni en ekki alltaf einstaka keppinauta
Hæstaréttardómur sá sem gerður var að umtalsefni hér í upphafi markar endalok á mjög langri meðferð málsins hjá Samkeppniseftirlitinu og dómstólum. Málið er raunar gott dæmi um það hversu hart er oft tekist á um úrlausnir samkeppnismála og hversu flókin þau geta verið.

Þessi langa málsmeðferð leiðir jafnframt hugann að því að úrlausnir samkeppnisyfirvalda koma ekki alltaf kvartandanum sjálfum að fullum notum, þótt sem betur fer séu til fjölmörg dæmi um að þær hafi komið í veg fyrir að keppinautar hafi hrökklast út af markaðnum.

Skiljanlegt er að keppinautur sem kvartar til samkeppnisyfirvalda vilji skjóta úrlausn máls. Staðreyndin er hins vegar sú að samkeppnislöggjöfin og framkvæmd hennar beinist ekki að því að bjarga fyrirtækjum frá hvers konar tjóni af samkeppnishindrunum, heldur því að stöðva brot og skapa til framtíðar bætt samkeppnisumhverfi, efnahagslífinu og almenningi til hagsbóta.

Á hinn bóginn getur endanleg niðurstaða í samkeppnismálum verið keppinautum tilefni til þess að sækja bætur á hendur því fyrirtæki sem braut samkeppnislögin og bakaði þeim tjón.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Samkeppnislög skipta miklu máli á flugmarkaði