Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið heimilar sameiningu Arion banka og AFLs

ingvar haraldsson skrifar
Höfuðstöðvar Arion banka.
Höfuðstöðvar Arion banka. vísir/pjetur
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað sameiningu AFL sparisjóðs og Arion banka.

Sparisjóðurinn hafði um nokkurra mánaða skeið ekki uppfyllt kröfu Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall og hefur Arion banki, sem langstærsti eigandi stofnfjárs, unnið að málefnum sjóðsins í samstarfi við stjórn hans, Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið samkvæmt tilkynningu frá bankanum.

Í upphafi maímánaðar gerðu Arion banki og Samkeppniseftirlitið með sér sátt þar sem kveðið er á um að bankinn skuli selja eignarhlut sinn í opnu söluferli. Eignarhlutur Arion banka er 99,3% stofnfjár.

AFL sparisjóður fékk endurskoðendur KPMG til að meta lánasafn sjóðsins. Sú vinna hefur leitt í ljós að staða sjóðsins er mun verri en fram kemur í síðasta ársreikningi og þarf sjóðurinn á verulegu eiginfjárframlagi að halda til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningunni.

„Úrlausn lagalegs ágreinings varðandi erlend lán AFLs myndi þar engu breyta um. Eftirlitsaðilar hafa verið upplýstir um stöðu sjóðsins. Að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið hefur Samkeppniseftirlitið nú endurskoðað fyrri ákvörðun og heimilað Arion banka að sameina AFL sparisjóð bankanum þar sem sparisjóðurinn er talinn fjármálafyrirtæki á fallanda fæti,“ segir Arion banki.

Vegna þess hefur verið fallið frá því að selja AFL og mun Arion banki þegar í stað ráðast í að sameina AFL sparisjóð bankanum. „Þar til sameiningarferlinu er lokið mun Arion banki standa þétt að baki AFLi sparisjóði og veita honum þá fyrirgreiðslu sem nauðsynleg er. Þetta á bæði við um ný útlán sem og innlán viðskiptavina. AFL sparisjóður er staðsettur á Siglufirði og rekur auk þess útibú á Sauðárkróki. Markmið Arion banka er að reka öfluga fjármálaþjónustu á starfssvæði AFLs sparisjóðs og leggja þannig sitt af mörkum til uppbyggingar atvinnulífs og samfélags á svæðinu,“ segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×