Viðskipti innlent

Samkeppni sparisjóðanna ekki mikil í stóra samhenginu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson.
Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson. vísir/vilhelm
Össur Skarphéðinsson vakti á ný athygli á málefnum Sparisjóðanna í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Til andsvara var Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og virtust þeir deila svipuðum skoðunum.

Fyrir tveimur dögum vakti Össur máls á því sama fyrir tveimur dögum undir liðnum störf þingsins en þá tók Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingsflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, undir orð hans.

Sjá einnig: Gagnrýna yfirtöku bankanna: „Það setur að mér hroll“

„Ég hef verið fullvissaður um það að hæstv. ríkisstjórn vinni að því ötullega að endurreisa sparisjóðina og sjá til þess að þeir verði áfram virkt afl á fjármálamarkaði. Nú hefur það hins vegar gerst að þrír sparisjóðir hafa verið hramsaðir upp og sporðrenndir af þremur viðskiptabönkum,“ sagði Össur.

Þingmaðurinn bætti því við að ríkissjóður sæi þar á eftir mikilvægri eign sem hann á í sparisjóðunum, í það minnsta myndi hún verðfalla. Mikilvægt liðsinni byggðarlaga úti á landi hyrfu einnig á braut og að verknaðurinn myndi herða snöruna enn frekar að hálsi neytenda. Sparisjóðirnir hefðu getað orðið eina mótvægið við vaxtastefnu stóru bankanna.

Ekki hægt að óska eftir sjálfstæði og inngripum á sama tíma

„Bankasýslan fer með eignarhaldið og Fjármálaeftirlitið fer með eftirlit með starfseminni. Því miður hafa þessar einingar ekki náð sér á strik,“ sagði Bjarni Benediktsson í svari sínu. Hann bætti við að samkeppni sparisjóðanna væri hins vegar ekki mikil í stóra samhenginu. Uppsafnað eigin fé þeirra sé á bilinu fjórir til fimm milljarðar en eigið fé Landsbankans eins er um 250 milljarðar.

„Það er ekki bæði hægt að halda því fram að ég sé með breytingum á Bankasýslunni að reyna að sölsa undir mig Bankasýsluna, sem megi alls ekki gerast, og segja í hinu orðinu: Bjarni, þú áttir að gera eitthvað og grípa í taumana eins og þú réðir yfir Bankasýslunni og hlut okkar í sparisjóðunum,” sagði Bjarni. Slíkt gengi einfaldlega ekki.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×