Lífið

Sami maður og hrelldi Gigi Hadid kyssti afturenda Kim Kardashian

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Maðurinn, Vitalii Seduik, sem kallar sjálfan sig hrekkjalóm, laumaði sér framhjá öryggisvörðum Kim Kardashian
Maðurinn, Vitalii Seduik, sem kallar sjálfan sig hrekkjalóm, laumaði sér framhjá öryggisvörðum Kim Kardashian Vísir
Athygli vakti á dögunum þegar fyrirsætan Gigi Hadid þurfti að beita sjálfsvörn þegar maður gekk aftan að henni og lyfti henni upp. Sökudólgurinn lét til skarar skríða á ný í dag þegar hann laumaði sér að Kim Kardashian og kyssti afturenda hennar.

Maðurinn, Vitalii Seduik, sem kallar sjálfan sig hrekkjalóm, laumaði sér framhjá öryggisvörðum Kim Kardashian þegar hún var að ganga að bíl sínum í París. Öryggisverðir Kim Kardashian voru þó afar fljótir að handsama Vitalii en óvíst er hvort hann hafi verið handtekinn.

Kim þakkaði öryggisvörðum sínum kærlega fyrir aðstoðina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Seduiik lætur til skarar skríða gegn Kim en árið 2014 var hann nærri því búinn að tækla hana niður líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×