Fótbolti

Samherji Ronaldo, Bale og Benzema biður þá um að sinna líka varnarleiknum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
BBC, verjast!
BBC, verjast! vísir/getty
Lukas Vazquez, framherji Real Madrid, er ósáttur við hvað liðið er að fá á sig mikið af mörkum og biðlar til stjörnuþríeykisins Cristiano Ronaldo, Gareth Bale og Karim Benzema að hjálpa til í varnarleiknum til að koma frekar í veg fyrir þennan leka.

BBC-framlínan er búin að vera í stuði eins og alltaf en þremenningarnir eru búnir að skora samtals 19 mörk á tímabilinu. Real er í fínum málum á toppi spænsku 1. deildarinnar og á barmi þess að komast í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Þrátt fyrir að vera enn taplaust á leiktíðinni er Real-liðið búið að fá á sig 18 mörk, þar af þrjú gegn Legia Varsjá í síðustu umferð Meistaradeildarinnar. Þá hefur liðið aðeins haldið hreinu einu sinni í síðustu ellefu leikjum.

Vazquez kallar eftir því að allir, þar á meðal BBC-þríeykið, sinni sínu hlutverki í varnarleiknum svo liðið hætti að fá á sig öll þessi mörk.

„Lið byggist á því að allir eru að leggja sitt að mörkum. BBC og miðjumennirnir þurfa að hjálpa varnarlínunni svo við fáum ekki á okkur svona mörg mörk,“ segir Vazquez í viðtali við Cadena COPE.

Vazquez var reglulega í liðinu hjá Zinedine Zidane á síðustu leiktíð en er aðeins búinn að byrja þrjá leiki á yfirstandandi tímabili. Þrátt fyrir það er framherjinn mátulega sáttur á Bernabéu eins og staðan er.

„Það skiptir ekki máli hvort BBC-þríeykið sé ósnertanlegt eða ekki. Þjálfarinn er sá eini sem ræður og við þurfum að æfa líka. Zidane veitir mér sjálfstraust. Ég veit ekki hvað ég geri á næstu 2-3 árum en ég er ánægður hjá Real Madrid núna,“ seigr Vazquez.

„Að verða eitthvað pirraður hjálpar engum. Maður verður að gera sitt besta fyrir liðið þegar maður fær tækifæri,“ segir Lukas Vazquez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×