Fótbolti

Samherji Jóhanns Berg fyrirliði Íra í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Robbie Brady hefur skorað sjö mörk í 31 landsleik fyrir Írland.
Robbie Brady hefur skorað sjö mörk í 31 landsleik fyrir Írland. vísir/getty
Robbie Brady leiðir írska landsliðið út á Aviva-völlinn í Dublin þegar það mætir því íslenska í vináttulandsleik í kvöld.

Brady ber fyrirliðabandið í fjarveru Seamus Coleman sem fótbrotnaði illa í leik Írlands og Wales á föstudaginn.

Brady, sem er uppalinn hjá Man­chester United, er dýrasti leikmaður í sögu Burnley en hann gekk í raðir liðsins frá Norwich City í janúar.

Brady er samherji Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley en þeir félagar mætast þó ekki í kvöld því Jóhann Berg er meiddur og ekki í íslenska landsliðshópnum.

Brady hefur leikið 31 leik fyrir írska landsliðið og skorað sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×