Skoðun

Samfélagsábyrgð borgar sig

Fanney Karlsdóttir skrifar
Hvað er sammerkt með gosrisanum Coca-Cola annars vegar og hins vegar Novo Nordisk, einu fremsta fyrirtæki í baráttunni gegn sykursýki og offitu? Bæði fyrirtækin hafa látið sig samfélagsábyrgð varða með markvissum hætti þannig að þess eru skýr merki í viðskiptastefnu þeirra. Þetta hefur skilað sér í meiri arðsemi fyrirtækjanna um leið og samfélagið nýtur góðs af. Fulltrúar fyrirtækjanna munu segja frá ávinningi sínum af samfélagsábyrgð á árlegri ráðstefnu Festu í Hörpu 25. janúar.

Á Íslandi má greina aukinn áhuga fyrirtækja á samfélagsábyrgð. Fyrirtæki sjá að það getur skilað sér í betri rekstri, til dæmis með betri nýtingu auðlinda, minni rekstrar­áhættu, aukinni viðskiptavild, minni starfsmannaveltu og nýjum viðskiptatækifærum. Það eru þó einkum og sér í lagi þau fyrirtæki sem ná að beintengja samfélagsábyrgð við viðskiptastefnu sína sem ná miklum árangri út frá arðsemi. Hjá þeim verður viðskiptaforskotið gjarnan mikið miðað við þau fyrirtæki sem hlúa síður að ábyrgð sinni gagnvart samfélagi og umhverfi.

Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi, styður fyrirtæki og stofnanir sem vilja innleiða samfélagsábyrgð með markvissum hætti. Flest fyrirtæki gera það af fúsum og frjálsum vilja þar sem þau sjá viðskiptatækifærin í því. Önnur komast ekki hjá því vegna breytinga á lögum, svo sem um jafnara hlutfall kvenna og karla í stjórnum fyrirtækja og jöfn laun þeirra. Auk þess hafa nú tekið gildi ný ársreikningalög sem skylda fyrirtæki af ákveðinni stærð og gerð til að gera grein fyrir sinni samfélagsábyrgð.

Á alþjóðavísu eru fyrirtæki nú hvött til þess að taka virkan þátt í að ná Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til ársins 2030. Markmiðin benda á mikilvægi þess að vinna taktfast að brýnum verkefnum eins og loftslagsmálum, auknum jöfnuði og útrýmingu fátæktar. Mörg Heimsmarkmiðanna snúast um sjálfbærni í nýtingu auðlinda og nýsköpun. Án þátttöku fyrirtækja er talið að Heimsmarkmiðin muni ekki nást. Á Íslandi sjáum við að fyrirtæki sem eru félagar í Festu eru farin að tengja starfsemi sína og markmiðasetningu við ákveðin Heimsmarkmið og leggja þannig sitt af mörkum.

Fyrst samfélagsábyrgð felur í sér tækifæri til aukinnar arðsemi fyrir fyrirtæki er þá ekki augljóst að allir stjórnendur ættu að kynna sér hvernig innleiða má samfélagsábyrgð með markvissum hætti í reksturinn til heilla fyrir fyrirtækið og samfélagið? Fyrirtæki geta stuðlað að betri heimi og ákallið til þeirra um það verður sífellt háværara.

Höfundur er stjórnarformaður Festu, miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. 




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×