Lífið

Samfélag þar sem allir eru jafnir

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Hugleikur Dagsson og Ísak Óli eru meðal þeirra listamanna sem tóku þátt í Samsuðu.
Hugleikur Dagsson og Ísak Óli eru meðal þeirra listamanna sem tóku þátt í Samsuðu. Vísir/skjáskot
„Með myndinni vonast ég til þess að vekja þá tilfinningu hjá áhorfendum að við viljum samfélag þar sem allir eru jafnir og það sé það samfélag sem við viljum búa í,“ segir Íris Stefanía Skúladóttir sem var að klára lokaverkefni sitt í meistaranámi í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Verkefnið er heimildarmyndin Samsuða – saga átta listamanna.

Myndin fjallar um átta listamenn sem unnu saman í pörum þar sem einn listamaður var með fötlun og annar án, við að skapa eitt listaverk fyrir uppboðssýninguna Samsuðu. Sýningin var haldin á Kjarvalsstöðum og var á vegum listahátíðarinnar List án landamæra vorið 2014. Hugmyndina að myndinni fékk Íris þegar hún var í náminu og starfaði einnig sem framkvæmdastýra Listar án landamæra.

„Markmiðið með myndinni er að brúa bilið á milli samfélagshópa og stuðla að jafnara samfélagi,“ segir Íris Stefanía. Í myndinni má heyra listamennina ræða það hvað þeir lærðu hver af öðrum og hve gefandi samstarfið var.

Stefnt er að því að sýna myndina í Bíói Paradís í október og síðan á alþjóðlegu mannréttindakvikmyndahátíðinni í Valencia á Spáni í framhaldi af því.

Íris Stefanía setti myndina nýlega inn á vefsíðuna Karolina Fund þar sem hún safnar nú fyrir kostnaði við eftirvinnslu, þýðingu og kynningu myndarinnar svo eitthvað sé nefnt. „Ég vonast auðvitað til þess að myndin verði sýnd sem víðast því að mér finnst boðskapurinn svo mikilvægur og hann á að fá að heyrast.“

„Markmiðið með myndinni er að brúa bilið á milli samfélagshópa og stuðla að jafnara samfélagi,“ segir Íris Stefanía. Í myndinni má heyra listamennina ræða það hvað þeir lærðu hver af öðrum og hve gefandi samstarfið var.

Stefnt er að því að sýna myndina í Bíói Paradís í október og síðan á alþjóðlegu mannréttindakvikmyndahátíðinni í Valencia á Spáni í framhaldi af því. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×