Skoðun

Sameinumst um leiðtogakjör í borginni

Friðrik Þór Gunnarsson skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í borginni með um 25% fylgi. Það er þó lítil huggun í því, þegar horft er til þess að flokkurinn hefur verið í minnihluta í hartnær 20 ár. Reykjavíkurborg er fyrrum vígi Sjálfstæðismanna, en undanfarin misseri hefur rödd okkar verið lítið styrkari en dauft bergmál.

Reykjavíkurborg þarf á öflugri og styrkri stjórn að halda til að hún verði á nýjan leik leiðandi á sem flestum sviðum og til að hún verði fyrsti valkostur þegar fólk velur sér búsetu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sjaldan átt jafn mikið undir því að gengið sé samstíga og taktfast í átt að kosningum. Sú vegferð er hafin, en haldið var öflugt Reykjavíkurþing í byrjun sumars á vegum Varðar.

Nú er komið að því velja öflugan og samhentan framboðslista. Lista sem blæs von í brjóst borgarbúa með metnaðarfullri stefnu sem gerir fólki kleift að koma sér þaki yfir höfuðið, leysa umferðarvandann, bæta almenna grunnþjónustu, að skólarnir okkar verði enn betri og að Reykjavík geti á nýjan leik státað af því að vera í fremstu röð allra sveitarfélaga.

Fram er komin tillaga frá Verði, fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um að haldið verði leiðtogaval og síðan stillt upp í önnur sæti af kjörnefnd. Þetta er nýstárleg og spennandi leið sem hefur fengið góðar undirtektir hjá flokksmönnum. Undanfarin ár hefur þátttakan í almennum prófkjörum því miður farið stöðugt minnkandi, en það er spurn hvort þær jákvæðu undirtektir sem leiðtogakjörið hefur fengið séu líklegar til þess að valda því að áhuginn á þátttöku vaxi og dafni á ný.

Blandaða leiðin þar sem oddvitinn er kjörinn í sérkosningu tryggir að fylkt verði liði á bak við leiðtoga með sterkt umboð. Kjörnefnd mun svo stilla upp í önnur sæti og tryggja að raddir allra borgarbúa heyrist. Raddir ungra, raddir eldri borgara, raddir kvenna, raddir karla, raddir miðbæjarins og raddir efri byggða. Með slíkum lista er Sjálfstæðisflokknum ekkert að vanbúnaði að fara í kosningabaráttu og vinna borgina.

Höfundur er formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavíkþ.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×